Einstaklingarnir tveir, sem fundust meðvitundarlausir í tjaldi í Biskupstungum, eru íslensk hjón.
Tæknideild lögreglu kom að málinu sem er rannsakað sem slys. Grunur er um að gasleki hafi orðið úr gastæki í tjaldinu.
Þetta staðfestir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is. Lögreglu barst tilkynning um málið um hádegisbilið í gær.
Veittu fyrstu hjálp
Karlmaðurinn var úrskurðaður látinn skömmu eftir að vinafólk hjónanna kom að þeim um hádegisbilið í gær. Hann var á áttræðisaldri.
Eiginkona hans var flutt þungt haldin á gjörgæsludeild. Hún er á sjötugsaldri.
Vinafólkið veitti fyrstu hjálp áður en viðbragðsaðilar komu á staðinn að sögn Magnúsar. Viðbragðsaðilar reyndu endurlífgun sem bar ekki árangur.