Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir þróun verðbólgunnar mikil vonbrigði en hún hefur ekki mælst hærri í um tvö ár. Erlendar hækkanir svo sem olíuverðshækkanir hafi haft veruleg áhrif en að sama skapi sé undirliggjandi verðbólga að hreyfast í rétta átt.
Ekki auðvelt að afnema verðtryggingu
Alþingi kemur saman á ný eftir tíu daga og var setning Alþingis á dagskrá ríkisstjórnarfundar í gær. Eitt þeirra frumvarpa sem lagt verður fram á haustþingi miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar.
„Þetta er mjög erfitt umhverfi sem við höfum verið í en það er ekki auðvelt að afnema þetta. Við munum fara eitt skref núna með frumvarpið sem verður lagt fyrir áramót og mun snúa að greiðslum inn á lán og fleira. Ég ætla ekki að tjá mig í smáatriðum um það en við munum þurfa að gera þetta í góðu samkomulagi meðal annars við vinnumarkaðinn.“
Hún segir markmiðið ekki vera að afnema verðtrygginguna í einu vetfangi, enda sé hún samofin íslensku fjármálakerfi.
„Það verður að gera þetta í skrefum enda er verðtryggingin eitthvað sem gegnsýrir hér allt samfélag. Í dag eru margir sem kjósa það að taka verðtryggt lán vegna þess að vextir eru hærri fyrir vikið og eru þannig smám saman að velja sér kannski út úr vaxtahækkunum. Það er skiljanlegt til skamms tíma en gerir það að verkum að eigið fé í húsnæði fólks smám saman lækkar, eða þetta er lántaka á eigin húsnæði. Þetta er einstakt í rauninni víða í heiminum að við séum með verðtryggingu en við höfum þurft að tryggja okkur fram í tímann vegna þess að verðlag hefur verið óstöðugt og við þurfum að stíga þessi skref.“