„Vestmannaeyjar og önnur eyjasamfélög geta ekki verið hornkerlingar í samgönguáætlun,“ segir Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokks. Hún hefur óskað eftir opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd með Eyjólfi Ármannsyni innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja sem og nauðsyn heildstæðrar ferjuáætlunar fyrir allt landið.
Tilefni fundarins er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu Landeyjahafnar. „Vestmannaeyjar er þungavigtarstaður sem má ekki vera útundan í okkar plönum,“ segir Halla Hrund.
Landeyjahöfn hefur verið lokuð meirihluta ársins. Vestmannaeyingar eru langþreyttir á stöðunni og vilja róttækar aðgerðir. Innviðaráðuneytið hefur framlengt ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja um tvær vikur vegna stöðunnar.
Það tekur um 35 mínútur fyrir Herjólf að sigla í Landeyjahöfn, samanborið við tæpar þrjár klukkustundir í Þorlákshöfn. Bilun í Herjólfi veldur því að nú tekur sú sigling rúmlega þrjár og hálfa klukkustund, og aðeins eru farnar tvær ferðir á dag í stað sjö.
Fundarbeiðnin var samþykkt einróma en fundurinn hefur ekki verið boðaður.
Á fundinum með ráðherra mun Halla Hrund óska eftir því að ráðherra geri grein fyrir aðgerðum næstu vikna og mánaða vegna Landeyjahafnar, viðhalds Herjólfs og varaskipakosts. Þá vill hún að rætt verði hvort tímabært sé að móta heildstæða ferjuáætlun fyrir Ísland þar sem kaup, endurnýjun, viðhald og varaskip ferja verði tímasett og fjármögnuð sem hluti af samgönguáætlun.
Halla Hrund segir endurteknar dýpkanir í Landeyjarhöfn algjörlega óásættanlegar fyrir íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. „Það þyrfti að skilgreina siglingaleiðina sem þjóðferjuleið svo hún fengi sterkari stöðu í samfélaginu.“