Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, telur að ríkið ætti fremur að fjármagna sinn hlut í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með sölu á ríkiseignum í stað þess að gera það með veggjöldum.
Þetta segir bæjarstjórinn í samtali við mbl.is.
Lagði Ásdís til í færslu á Facebook-síðu sinni í dag að ríkið myndi ráðast í sölu Landsbankans til að fjármagna sáttmálann.
Ekkert annað en skattahækkun
Tilefni færslu Ásdísar var viðtal Ríkisútvarpsins við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þar sem hann sagði að hefja þyrfti samtal milli ríkis og sveitarfélaga um það hvernig fjármögnun ríkisins yrði útfærð.
„Samgöngusáttmálinn er að hluta til fjármagnaður af sveitarfélögunum og að hluta til af ríkinu. Við erum búin að tryggja fjármögnun okkar megin og erum með það í okkar langtímaáætlunum. Ríkið hefur ekki tryggt sinn hlut og mér finnst mikilvægt að halda því til haga að það er ábyrgð ríkisins að finna út úr því,“ segir bæjarstjórinn.
Það virðist vera stefna ríkisins sem stendur að fjármagna sinn hlut með veggjöldum.
„Það er auðvitað ekkert annað en skattahækkun á borgarbúa. Ég er að benda á að það er vel hægt að fara aðrar leiðir, það er hægt að selja Landsbankann og nota hluta af söluandvirði þess renna í samgöngusáttmálann,“ segir Ásdís.
Mikilvægt að stöðva ekki þegar framkvæmdir eru hafnar.
Segir Ásdís að álagning veggjalda yrði enn einn liður í skattagleði ríkisstjórnarinnar.
„Þessi ríkisstjórn hefur verið að hækka gríðarlega skatta á fólk og fyrirtæki. Ef það á að fjármagna hlut ríkisins að öllu leyti með veggjöldum þá er það auðvitað alveg gríðarlega mikil skattahækkun. Mér finnst mikilvægt að ríkisstjórnin hugi að öðrum leiðum.“
Í frétt Ríkisútvarpsins er haft eftir Daða að endurskoðun á sáttmálanum megi ekki tefja framkvæmd hans enn frekar. Ásdís telur brýnt að ríkið meitli í stein sem fyrst hvernig fjármögnun verði háttað, annað tefji fyrir.
„Það er algjörlega þörf á því sem fyrst. Ef við ætlum að fara í endurskoðun, sem ég er alls ekki mótfallin, þá er mikilvægt að haldið sé áfram með þau verkefni sem farin eru af stað og ég vænti þess að allir séu sammála því að ekki sé hægt að stöðva framkvæmdir sem farnar eru af stað, ég nefni Arnarnesveginn og Fossvogsbrúna sem dæmi.“