Vill ákvarðanir á grunni gagna og raunveruleika í stað hugmyndafræði

Vill ákvarðanir á grunni gagna og raunveruleika í stað hugmyndafræði

Vill ákvarðanir á grunni gagna og raunveruleika í stað hugmyndafræði

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gagnrýnir stjórnvöld vegna aukinnar verðbólgu. Hann segir að undirliggjandi verðbólga sé nær 6,0 prósentum en 5,6% og vísar þar til áhrifa af lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Þetta segir hann í færslu á Facebook-síðu sinni.

Vilhjálmur telur stjórnvöld gera meira til að ýta undir verðbólgu en halda aftur af henni.

„Þau kasta sjálf viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið!“

Vilhjálmur vísar til hækkana á komugjaldi á heilsugæslur, nýrrar gjaldtöku á ýmiss konar þjálfun innan heilbrigðiskerfisins og hækkandi háskólagjalda.

„Það er hreint út sagt sorglegt að horfa upp á stjórnvöld kasta viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið með hækkunum á opinberum gjöldum á sama tíma og þau vita fullvel hversu alvarlegar afleiðingar verðbólgan og okurvextirnir hafa fyrir heimilin.“

„Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Samningarnir voru gerðir eftir forskrift Seðlabankans á grunni hugmyndafræði um að laun séu helsti áhrifaþáttur verðbólgunnar og sé samið um lágar hækkanir gangi verðbólga niður og þá sé hægt að lækka stýrivexti,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í færslu á Facebook.

„Þessi hugmyndafræði hefur endanlega beðið skipbrot. Verðbólga er næstum heilu prósentustigi yfir viðmiði forsenduákvæðisins og hún er á breiðum grunni, næstum allt hefur hækkað. Hávaxtastefna Seðlabankans hefur varað í næstum fjögur ár.“

Næstu ákvarðanir þurfi að taka á grunni gagna og raunveruleikans – ekki hugmyndafræði. VR ætli að senda frá sér nánari greiningu á ársverðbólgunni og forsendubresti kjarasamninga.

„Við höfum fram til 8. október til að ákveða hvort við segjum upp kjarasamningum. Vonandi er andvaraleysið á undanhaldi.

Ragnhildur Helgadóttir fréttamaður ræddi við Finnbjörn Hermannsson, forseta Alþýðusambandsins, nokkrum mínútum eftir að Hagstofan birti verðbólgumælingu sína.

Forseti ASÍ segir verkalýðshreyfinguna þurfa raunveruleg loforð frá Samtökum atvinnulífsins og hinu opinbera til að ná niður verðbólgu.

„Ekki bara einhver vilyrði og „leitast skal við“ og „af fremsta megni“ eins og þau virðast hafa haldið að síðasta loforð var,“ segir Finnbjörn Hermannsson.

Miðað við tölurnar eru forsendur kjarasamninganna brostnar en forsendunefnd þarf formlega að gefa það út. „Sú nefnd kemur saman á mánudaginn og þá munum við ákveða viðbrögð við því.“

ASÍ, SA og hið opinbera hafa átt í viðræðum til að koma í veg fyrir að segja þurfi upp kjarasamningum og hafa til 8. október til að bregðast við.

„Í sjálfu sér þurfum við ekkert að nýta allan þann tíma. Við erum náttúrlega búin að vera í viðræðum – bæði við Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld frá því snemma í sumar, því það var ljóst að það stefndi í þetta,“ segir Finnbjörn.

Það kemur svo sem engum á óvart en við það að verðbólga mældist 5,6 prósent í ágúst brustu forsendur kjarasamninga frá 2024.

Í samningum var ákvæði um að ef verðbólga væri meiri en 4,7 prósent í ágúst væri hægt að segja þeim upp. Það gerist þó ekki sjálfkrafa. Aðilar vinnumarkaðarins verða að taka afstöðu til forsendnanna í næsta mánuði og meta framhaldið. Þeir geta ákveðið viðbrögð til að láta samninginn gilda eða sagt honum upp.

Verði kjarasamningum sagt upp falla þeir úr gildi 31. október.

Verðbólgan var 5,6 prósent í ágúst samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Það er mesta verðbólga sem mælst hefur síðan í ágúst 2024. Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár.

Meðal þess sem hefur áhrif til aukinnar verðbólgu er að fataverð hefur hækkað eftir að útsölum lauk og kostnaður fólks vegna húsnæðis hefur aukist. Flugfargjöld lækkuðu þó milli mánaða eftir að hafa hækkað mikið í júlí.

Skráningargjald í opinberum háskólum hækkaði úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur og það leiddi til 0,07 prósenta hækkunar neysluverðsvísitölunnar. Þetta er í fyrsta skipti í tólf ár sem skráningargjaldið hækkar.

Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár. Síðustu ár hefur verðbólga mest farið í 10,2 prósent í febrúar 2023 og minnst mælst 3,7 prósent í nóvember í fyrra.

Rúmlega fimm prósenta verðbólga er langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Stefna hans gengur út á að verðbólga sé sem næst 2,5 prósentum.

Stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkana eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst fyrr á þessu ári. Það dugði ekki til að halda verðbólgunni undir þeim mörkum sem virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninga.

Góðan dag og velkomin á fréttavakt um verðbólgu í ágúst og áhrif hennar á kjaramál.

Hagstofan greinir frá því klukkan níu hversu mikil verðbólgan var í ágúst. Þegar gengið var frá kjarasamningum í febrúar 2024 var ákvæði um að hægt væri að segja þeim upp ef verðbólgan mældist yfir 4,7 prósentum í þessari verðbólgumælingu. Lengi hefur legið fyrir að svo yrði.

Verðbólgan var 5,3 prósent í síðasta mánuði. Landsbankinn spáir því að verðbólga hafi aukist í ágúst og verði 5,5 prósent, Íslandsbanki spáir aðeins meiri verðbólgu, 5,6 prósentum.

Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

#gagna #grunni #raunveruleika #vill #ákvarðanir

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-vill-akvardanir-a-grunni-gagna-og-raunveruleika-i-stad-hugmyndafraedi-484980

📰 Aðrar fréttir

PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 0
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 1
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 1
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 0
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 0
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 0
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 0
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ár...
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvili...
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
📅 11.10.2026 👁️ 2
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
The Spanish Government has officially recognised a 77.69% probability of at least one volcanic eruption occurring somewhere in the Canary Islands with...
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
📅 11.10.2026 👁️ 2
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
The Yemeni group says it carried out attacks that killed 13 people over the weekend and targeted two airports and oil facilities.
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
📅 11.10.2026 👁️ 2
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.Volodymyr Zel...
What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 2
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 3
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
📅 11.10.2026 👁️ 2
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
Á föstudaginn tilkynnti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, víðtækar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Dómstóllinn ve...
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
📅 11.10.2026 👁️ 2
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í ...
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 11.10.2026 👁️ 2
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Tvenn mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hófust klukkan 15 í dag. Þau eru annars vegar haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfir...
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
📅 11.10.2026 👁️ 2
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
A new residential complex of 112 affordable homes for local workers and families is set to be finished in Las Chafiras, San Miguel de Abona, in 2027, ...
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu Fréttin11. október 2026Covid bóluefni, Dómsmál, ErlentLeave a Com...
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera till...
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi ...
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
📅 11.10.2026 👁️ 2
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
The PM was speaking after violent attacks at Polish schools this week left one dead and others injured.
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu. Kryddsíld hef...
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
📅 11.10.2026 👁️ 3
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
Horseday ehf. veitti hestaeiganda ekki fullnægjandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga hennar í smáforritinu Horseday, samkvæmt úrskurði Persónuvern...
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir

Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
📅 11.10.2026 👁️ 3
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu...
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn
📅 11.10.2026 👁️ 3
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Myriam Monsonego. M...
Páfinn á leið í aðgerð
📅 11.10.2026 👁️ 3
Páfinn á leið í aðgerð
Leó páfi XIV er á leið í aðgerð á næstu dögum. Hnúður fannst á lunga hans við reglubundna læknisskoðun nýlega.Páfinn tilkynnti þetta á Péturstorginu í...
Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús - Vísir
Flóðið hreif með sér hús og brýr auk þess að valda skemmdum á hluta vatnsaflsvirkjunar að sögn yfirvalda. Um fimmtíu manns hefur verið bjargað af bökk...
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda
📅 11.10.2026 👁️ 3
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda
Fólk í sveitarstjórnum og ferðaþjónustu á Suðurlandi er ósátt við áformað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn.„Það sem við h...
Í beinni: Niðurstöður Samtalsins kynntar
📅 11.10.2026 👁️ 3
Í beinni: Niðurstöður Samtalsins kynntar
Niðurstöður „Samtalsins“ svokallaða eru kynntar í Hörpu í dag.Spurningin „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ var rædd víða um land í gær. Öllum...
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda - Vísir
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa borist sex tilkynningar um skemmdarverk á bílum í þessum mánuði. Málið er til rannsóknar. Mikil umræða fer nú f...
Singapore Grand Prix result: Max Verstappen wins from Charles Leclerc with Kimi Antonelli third
📅 11.10.2026 👁️ 2
Singapore Grand Prix result: Max Verstappen wins from Charles Leclerc with Kimi Antonelli third
Red Bull's Max Verstappen secures his first win in the Singapore Grand Prix, ahead of Charles Leclerc and Kimi Antonelli.
Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
📅 11.10.2026 👁️ 0
Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði Barry ManilowGoðsögnin hefur glímt við veikindi Mynd: LEON BENNETT / GETTY IMAGES VIA AF...
Leó páfi á leið í að­gerð eftir að hnútur fannst á lunga - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Leó páfi á leið í að­gerð eftir að hnútur fannst á lunga - Vísir
Leó páfi, sem er 71 árs gamall, sagði að læknateymi hans teldi rétt að grípa inn í og að hann hefði samþykkt að gangast undir aðgerðina. Fullvissaði h...
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður Fréttin11. október 2026Dómsmál, Erlent, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdótti...
Bein út­sending: Niður­stöður Sam­talsins kynntar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Niður­stöður Sam­talsins kynntar - Vísir
Fyrri dagur verkefnisins fór fram í gær en þá fóru samtöl fram í menntaskólum víða um land og Halla Tómasdóttir forseti hélt einnig samtal á Bessastöð...
Steinunn verður næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna
📅 11.10.2026 👁️ 4
Steinunn verður næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association, WMA) í gær. Hún tekur v...
Upp­byggi­legra sam­tal en í at­huga­semdum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Upp­byggi­legra sam­tal en í at­huga­semdum - Vísir
Ungt fólk leiddi umræðurnar undir yfirskriftinni Tölum saman en fólk á öllum aldri tók þátt. Verkefninu var ýtt úr vör af Höllu Tómasdóttur forseta Ís...
Orðið á götunni: Klofin verkalýðshreyfing – Sólveig Anna tapsár
📅 11.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Klofin verkalýðshreyfing – Sólveig Anna tapsár
Þær Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hafa löngum eldað grátt silfur saman. Þær eru formenn tveggja stæ...
Stofnandi Stöðvar 2 ósáttur við 40 ára afmælisþáttinn – „Vorum alveg ofsalega reið mörg hérna“
📅 11.10.2026 👁️ 4
Stofnandi Stöðvar 2 ósáttur við 40 ára afmælisþáttinn – „Vorum alveg ofsalega reið mörg hérna“
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur undanfarið minnst þess að 40 eru liðin frá stofnun sjónvarpsstöðvarinnar Stöð 2. Hámarki náði upprifjunin með 40 ára afm...
Lýsir yfir vonbrigðum með samning Trumps og Pútíns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lýsir yfir vonbrigðum með samning Trumps og Pútíns
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir vonbrigðum með ummæli Bandaríkjaforseta í gær um að Úkraína þurfi nýjan forseta. Þá segir ...
Yandex: Ukraine strikes data centre in third attack on Russian tech giant
📅 11.10.2026 👁️ 2
Yandex: Ukraine strikes data centre in third attack on Russian tech giant
It is the third time this week that Ukraine has targeted Russian tech giant Yandex, forcing the company to suspend its operations.
Nýr sjóður leitar að lausnum fyrir fólk með krabbamein
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr sjóður leitar að lausnum fyrir fólk með krabbamein
Krabbameinsfélag Íslands hefur sett á laggirnar nýjan sjóð sem ætlað er að styrkja þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess. Sjóðurinn be...
„Sól­veig Anna virðist vera með mig al­gjör­lega á heilanum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Sól­veig Anna virðist vera með mig al­gjör­lega á heilanum“ - Vísir
Þetta kom fram í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sólveig Anna hefur farið mikinn eftir að viðræður VR og SA lauk eftir að breiðfylkingin hafði þega...
Rétt og rangt um leigubremsu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rétt og rangt um leigubremsu
Rétt og rangt um leigubremsu Frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar um leigu­bremsu set­ur þak á hækk­an­ir leigu við hækk­un vísi­tölu neyslu­verðs. Stefá...
Djibouti boat capsize: Children among 139 dead with 84 still missing, UN says
📅 11.10.2026 👁️ 2
Djibouti boat capsize: Children among 139 dead with 84 still missing, UN says
The boat was travelling from Djibouti to Yemen with 305 people on board, when it capsized near the port town of Obock on Thursday night.
Úkraínumenn hætta árásum þegar Rússar hætta þeim
📅 11.10.2026 👁️ 4
Úkraínumenn hætta árásum þegar Rússar hætta þeim
Úkraínumenn eru reiðubúnir að hætta árásum á olíuinnviði í Rússlandi um leið og Rússar hætta árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Þetta sagði Volodymyr Zel...
Mót­mæla sjókvíaeldi í tveimur lands­hlutum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Mót­mæla sjókvíaeldi í tveimur lands­hlutum - Vísir
Mótmælin hefjast klukkan þrjú í báðum landshlutum. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stendur að þeim en þeirra á meðal má nefna Landvernd, félög sem...
„Ég hef á­hyggjur af Al­þýðu­sam­bandinu“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég hef á­hyggjur af Al­þýðu­sam­bandinu“ - Vísir
Bæði Vilhjálmur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýndu framgöngu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, harðlega og kallaði Vilhjálmur atbu...