Umhverfis- og samgöngunefnd vill að hagstæðari staðsetning fyrir flugvallarstæði á Ísafirði verði skoðuð. Bæjarstjóri fagnar tillögunni, sveitarstjórnarfólk hafi lengi sammælst um að það verði að tryggja flugið til lengri tíma.
„Það hafa orðið miklar breytingar í framleiðslu á flugvélum og þetta er mjög erfitt flugvallarstæði, eins og allir þekkja sem hafa komið hingað. Þannig við þurfum að halda þessari umræðu á lofti og skoða alla valmöguleika“, segir Gylfi Ólafsson, verðandi bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ og formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Í apríl náðust samningar um flug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar til 2030. Í útboði var reiknað með að kostnaðurinn yrði 1,3 milljarðar króna. Eina tilboðið sem barst kom frá Icelandair - og hljóðaði upp á 3,5 milljarða.
Flækjustigið er að ákveðna stærð flugvéla þarf til flugsins, vélar sem Icelandair er farið að nota minna en áður. Aðrir sjá ekki hag í að bjóða í flugið eða eru ekki með flugvélar sem henta til þess.
Vegagerðin hafnaði fyrsta tilboði og talaði Icelandair niður í einn komma sjö milljarða, en á móti minnkuðu kröfurnar um hversu oft yrði að fljúga.
Samningurinn kveður á um minnst 452 hringferðir á ári, en mismikið eftir árstíma. Til dæmis er ætlunin að fljúga minnst daglega milli borgarinnar og Ísafjarðar yfir háveturinn en minnst tíu sinnum á viku yfir sumarmánuði.
Varnarsigur að flugið hafi verið tryggt næstu 4 árin
Vestfirðingum leist vitanlega ekki vel á þjónustuskerðingu, en Gylfi segir jákvætt að flugið sé tryggt næstu fjögur árin.
„Já við litum á þetta sem varnarsigur, það er bara mjög mikilvægt að það sé hágæðaflug sem er að minnsta kosti daglega og helst tvisvar á dag, allt árið um kring. Að það sé á góðum vélum, með jafnþrýsti búnað og þokkalega stórum vélum.“
Þarf að tryggja samkeppni um flugleiðina
Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur lagt til að inn í aðgerðaáætlun samgönguáætlunar verði skoðuð ný staðsetning verði skoðuð fyrir flugvallarstæðið á norðanverðum Vestfjörðum Það þurfti til að tryggja virka samkeppni um flugleiðina.
Sveitarstjórn segir enga borðleggjandi staðsetningu fyrir nýja flugbraut, en ljóst sé að það verði að tryggja aðgengi stærri flugvéla.