Kaffistofa Samhjálpar fær að vera áfram í húsnæði Fíladelfíusafnaðarins út ágúst. Helgi Guðnason prestur segir að tími sé kominn til að borgin finni varanlegt húsnæði fyrir kaffistofuna.
„Við höfum fengið ósk þess efnis að framlengja dvölina um einn mánuð, að vera sem sagt út ágústmánuð, og við erum búin að segja já við því,“ segir Helgi.
„En við erum í þeirri erfiðu stöðu að vilja allt fyrir kaffistofuna að gera en þetta er auðvitað bráðabirgðalausn sem átti bara að vera til tveggja mánaða og eru núna orðnir níu, í lok ágúst verða þeir tíu þannig að við eigum mjög erfitt með að halda áfram óbreyttu ástandi.“
Kaffistofan varð húsnæðislaus í október í fyrra þegar húsnæði hennar við Borgartún var rifið. Fíladelfíusöfnuðurinn sló skjólhúsi yfir kaffistofuna á meðan opnun nýs húsnæðis við Grensásveg var undirbúin.
Íbúar og fyrirtæki í nágrenni fyrirhugaðs húsnæðis mótmæltu áformunum harðlega og loks felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála byggingarleyfið úr gildi. Síðan hefur ekkert bólað á nýju húsnæði.
„Við erum svolítið að bíða eftir að sjá hvað borgin gerir af því við höfum heyrt það frá borgarstjórninni nýju að þau séu að skoða málið og ætli að fara í þetta mál. En núverandi fyrirkomulag það gengur ekki mikið lengur, einfaldlega vegna þess að þetta var aldrei ætlað til lengri tíma en tveggja mánaða,“ segir Helgi.