Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot Kristjáns Björnssonar sem var vígslubiskup í Skálholti. Vígslubiskup er næstæðsta embætti Þjóðkirkjunnar á eftir biskupi Íslands. Kristján lét af störfum eftir að Þjóðkirkjan frétti af málinu.
Kærður fyrir kynferðisbrot í september á síðasta ári
Meint brot átti sér stað í Skálholti í ágúst á síðasta ári og beindist gegn konu sem tengist Kristjáni fjölskylduböndum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Konan kærði Kristján til lögreglu í september. Lögreglan á Suðurlandi hefur málið til rannsóknar.
Stjórn Þjóðkirkjunnar
Málið var ekki tilkynnt til aðgerðarteymis Þjóðkirkjunnar og fregnir af því bárust ekki til Biskupsstofu fyrr en rúmu hálfu ári síðar, í mars á þessu ári.
Heimildir fréttastofunnar innan kirkjunnar herma að stjórn Þjóðkirkjunnar hafi veitt biskupi Íslands, Guðrúnu Karls Helgadóttur, heimild til að víkja Kristjáni frá störfum vegna málsins. Það kom hins vegar ekki til þess. Kristján sagði af sér fimm dögum eftir að Þjóðkirkjunni var tilkynnt um atvikið.
Var staðgengill biskups Íslands þar til hann hætti
Kristján var vígður til embættis vígslubiskups í Skálholtsumdæmi sumarið 2018 af þáverandi biskupi Íslands Agnesi M. Sigurðardóttur. Vígslubiskup er næstæðsta embætti Þjóðkirkjunnar á eftir biskupi Íslands, og eru þeir tveir hverju sinni.
Kristján var sá vígslubiskup sem hafði sinnt embætti lengur og var því staðgengill biskups Íslands þar til hann lét af störfum í mars.
Kristján segir starfslokin komin til vegna breytinga á reglum
Sjálfur gefur Kristján aðra skýringu á starfslokunum á bloggsíðu sinni. Hann hafi látið af störfum vegna átaka sem fylgt hafi umræðu um embætti vígslubiskupa innan æðstu stjórnar kirkjunnar.
Hann hafi ákveðið að stíga til hliðar vegna nýrra starfsreglna um vígslubiskupa, þrátt fyrir að þær hafi ekki náð til hans – aðeins þeirra sem vígðir eru í embætti eftir að að reglurnar voru samþykktar.
Heimir Hannesson, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar, segir að kirkjan tjái sig ekki um málefni einstakra starfsmanna eða starfsflok þeirra. Hann staðfestir þó að Kristján Björnsson starfi ekki lengur hjá Þjóðkirkjunni.
Ekki náðist í Kristján við vinnslu fréttarinnar.