Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirbýr nú tillögur að breytingum á stækkunarstefnu sambandsins; tillögur sem til stendur að leggja fram á næstu vikum og ræddar verði á næsta leiðtogafundi ESB um miðjan október.
Forsmekkurinn að þessum tillögum kom fram í ræðu Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í Zagreb í gær, þar sem Kos lagði meðal annars áherslu á nauðsyn þess að gera breytingar á innviðum Evrópusambandsins svo hægt verði að fjölga í hópnum án mikilla vandkvæða.
„Þegar ég tala um mögulegar breytingar á innra skipulagi, þá gæti það meðal annars snúist um að fækka þeim sviðum þar sem eitt einstakt aðildarríki getur staðið í vegi fyrir öllum öðrum. Það gæti einnig snúist um að gera stofnanir okkar smærri,“ sagði Kos í ræðu sinni.
Umræða um smærri stofnanir í tengslum við fjölgun aðildarríkja hefur oft á tíðum snúist um hugmyndir sem lúta að því að sætum í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins verði ekki fjölgað í takt við innkomu nýrra aðildarríkja.
Annað meginþema í ræðu Kos var að tryggja að ný aðildarríki fylgi þeim grundvallarreglum, til dæmis um lýðræði og réttarfar sem Evrópusambandið byggir á. „Við verðum að tryggja að Trjójuhestar komi ekki inn,“ sagði Kos. „Ekki í dag, og heldur ekki eftir tíu eða tuttugu ár,“ sagði hún.
Viðræðum við Ísland lokið innan tveggja ára
Aðildarviðræður eru nú í fullum gangi við fjögur umsóknarríki sem beðið hafa í mislangan tíma eftir að komast í Evrópusambandið. Lengst eru þessar viðræður komnar við Svartfjallaland; þar er búið að loka meira en helmingi samningskafla og verið er að gera fyrsta uppkastið að aðildarsáttmála.
Viðræðurnar við Albaníu eru einnig í fullum gangi og í sumar voru síðan fyrstu kaflarnir opnaðir í aðildarviðræðum Úkraínu og Moldóvu - viðræður sem ekki fóru af stað fyrr vegna andstöðu fyrrverandi stjórnvalda í Ungverjalandi.
Mögulegum aðildarviðræðum við Ísland gæti verið lokið á einu til tveimur árum, sagði Kos í ræðu sinni - en lagði líka áherslu á að ákvörðun kjósenda á Íslandi á laugardaginn væri mikilvæg fyrir stækkunarferli Evrópusambandsins.
„Þetta gæti verið eitt af mikilvægustu skrefunum fyrir framtíð stækkunarferlisins, því þetta segir til um hversu góður kostur Evrópusambandið er,“ sagði Kos. „Sem hluti af innri markaðnum, þá gæti [Ísland] lokið aðildarviðræðum á einu til tveimur árum.“