Erlendur karlmaður er eftirlýstur hjá lögreglunni, grunaður um að hafa svikið fé út úr fólki.
„Vonandi náum við í hann fyrr en síðar,” segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, aðspurður, en lögreglan telur sig vita hver hafi verið að verki.
Fyrir helgi sagðist lögreglan leita erlends manns sem talinn var hafa svikið fé út úr eldri borgurum í Árbænum í Reykjavík.
Skúli segir fleiri svikamál hafa komið upp, eða í Hveragerði og hjá einum gesti Norðurálsmótsins á Akranesi. Talið er að sami einstaklingur hafi verið þarna að verki.
Aðferðin sem hann notar er sú að hann gengur um og óskar eftir 2.000 króna styrk fyrir góðgerðarsamtök. Hann afþakkar reiðufé en notar símann sinn í staðinn og fær kortaupplýsingar hjá fólki. Enda svikin á því að millifærðar eru á hann 2.000 evrur, eða um 300.000 krónur, í stað íslenskra króna.
Að sögn Skúla er maðurinn sem er eftirlýstur ekki með nein tengsl við Ísland.
Karlmaður handtekinn í gær
Lögreglan handtók annan mann í gær í tengslum við rannsóknina. Eftir yfirheyrslu útilokaði lögreglan að hann tengdist málinu á nokkurn hátt.

