Rafmagnið sló út, en fór í skamma stund á varafl. Þó varð netlaust og því rof á fjarskiptum. Jafnframt datt símasamband út í skamma stund.
Hilda Jana Gísladóttir, samskiptastjóri Sjúkrahússins á Akureyri, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.
Þegar blaðamaður náði tali af henni var netið enn úti en meðan á samtalinu stóð sýndist henni það komast aftur í lag.