„Við þurfum á öllu því hugviti að halda sem völ er á“ - MBL.IS

„Við þurfum á öllu því hugviti að halda sem völ er á“ - MBL.IS

„Við þurfum á öllu því hugviti að halda sem völ er á“ - MBL.IS

Orkumál hafa verið meðal stærstu umræðuefna samfélagsins undanfarin ár. Málefni á borð við orkuskipti, uppbyggingu innviða, aukna raforkuþörf og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda hafa færst sífellt ofar á dagskrá í samfélaginu. Fyrir Valdísi Guðmundsdóttur snúast þessi mál þó ekki eingöngu um tæknilegar lausnir eða stórar framkvæmdir heldur einnig um lífsgæði fólks og ábyrgð gagnvart framtíðinni.

Valdís var nýverið kjörin formaður Kvenna í orkumálum (KÍO), samtaka sem ætlað er að efla tengslanet kvenna í orku- og veitugeiranum og stuðla að aukinni fjölbreytni innan greinarinnar. Hún segir spennandi en jafnframt krefjandi tíma fram undan í íslenskum orkumálum og telur mikilvægt að ólík sjónarmið fái vægi þegar ákvarðanir um framtíðina eru teknar.

„Við erum að tala um mjög stór samfélagsleg verkefni sem snerta alla landsmenn með einum eða öðrum hætti. Þá skiptir máli að við fáum fjölbreyttan hóp fólks að borðinu og nýtum það hugvit sem samfélagið hefur upp á að bjóða,“ segir hún.

Heillaðist af jarðhitanum

Valdís starfaði áður í heilbrigðisgeiranum en áhugi á auðlinda- og orkumálum leiddi hana síðar inn í orkugeirann. „Ég byrjaði í heilbrigðisgeiranum en vildi breyta til og ákvað að stökkva yfir í orkumálin. Ég heillaðist algjörlega af jarðhita og nýtingu hans og hef í raun ekki litið um öxl síðan. Mér finnst það ótrúlega heillandi áskorun að vinna með og læra að virkja þessa miklu krafta sem búa í jörðinni,“ segir hún.

Í dag starfar Valdís hjá HS Orku í teymi sérfræðinga sem sér um að fylgjast með, rannsaka og stýra nýtingu auðlinda fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og snýr bæði að rannsóknum, mælingum og daglegri vöktun á því sem gerist neðanjarðar. „Starfið mitt felst í að fylgjast með því hvað er að gerast neðanjarðar – í grunnvatni og jarðhitakerfum. Dagsdaglega er ég að skipuleggja mælingar í borholum, greina gögn úr þeim og miðla niðurstöðum, huga að viðhaldi núverandi mannvirkja og koma ýmsum hugmyndum teymisins í framkvæmd. Engir tveir dagar eru eins, sem gerir starfið mitt svo ótrúlega lifandi.“

Hún segir gott samstarf skipta sköpum í faginu og að verkefnin krefjist þess að ólíkir sérfræðingar vinni náið saman. „Ég vinn mikið þvert á fyrirtækið og er einnig mikið í samskiptum við verktaka. Við hjá HS Orku höfum gengið í gegnum ýmislegt undanfarin misseri og það hefur kennt okkur að vinna enn þéttar saman og skilað okkur frábærum árangri í rekstri sem og í ábyrgri nýtingu auðlindanna okkar.“

Valdís starfaði áður í heilbrigðisgeiranum en áhugi á auðlinda- og …
Valdís starfaði áður í heilbrigðisgeiranum en áhugi á auðlinda- og orkumálum leiddi hana síðar inn í orkugeirann. Ljósmynd/Aðsend

Orkumál snúast um daglegt líf

Að mati Valdísar getur umræðan um orkumál oft orðið of tæknileg og fjarlæg almenningi. Hún telur því mikilvægt að tala meira um hvernig orkumál tengjast daglegu lífi fólks. „Eftir að hafa farið í útilegu á sumrin erum við flest mjög fegin að komast heim til okkar í hlýtt hús með rennandi heitu og köldu vatni, þvottavél, eldavél og ísskáp. Nútímalífsgæðin sem við erum orðin svo vön eru í raun það að búa við trausta orkuinnviði,“ segir hún og bendir á að þegar innviðirnir virki vel taki fólk þeim gjarnan sem sjálfsögðum hlut.

„Það er nefnilega þannig að besta vísbendingin um að innviðirnir okkar virki fullkomlega er að almenningur þurfi ekkert að hugsa um þá.“

Að baki þessum sjálfsögðu þægindum liggi þó mikil vinna, fjárfestingar og flókið regluverk. „Það sem býr að baki þessu öllu er svo nýsköpun, frumkvöðlastarf, uppbygging, virkjanir, fjárfestingar og alls konar regluverk sem við þurfum sem betur fer ekki öll að skilja og umræðan getur orðið svolítið fjarlæg og tæknileg.“

Valdís segir mikilvægt að minna á að orku- og vatnsauðlindir landsins séu verðmæti sem þurfi að fara vel með. „Við þurfum að minna okkur á að á bak við orkuna og vatnið í krananum liggja dýrmætar auðlindir sem við verðum að umgangast af virðingu og ábyrgð. Ef við náum að sýna fólki að orkumál snúast um lífsgæði, umhverfið og budduna, þá verður samtalið aðgengilegra.“

Uppbygging og framtíðarsýn

Aðspurð um stöðu íslenskra orkumála í dag segir Valdís augljósan vilja vera fyrir hendi hjá stjórnvöldum til að byggja upp innviði til framtíðar.

„Það er augljós og mikill vilji hjá stjórnvöldum núna til að byggja upp innviði til framtíðar. Þetta er náttúrlega bæði spennandi og krefjandi. Við erum að tala um að framleiða meira rafmagn, styrkja flutningskerfið og finna samfélagslega sátt um það hvernig við gerum það.“

Valdís segir verkefnin fram undan flókin og að þau verði ekki leyst nema með breiðri samvinnu og fjölbreyttum sjónarmiðum. „Þessi flóknu viðfangsefni krefjast þess að við fáum til liðs við okkur lausnamiðað fólk með ólíka sýn og fjölbreyttan bakgrunn. Við leysum þau ekki með því að allir í herberginu séu eins þenkjandi.“

Þar telur hún KÍO gegna mikilvægu hlutverki. „Þetta er eitt aðalverkefni okkar í KÍO, að tryggja fjölbreytileika við borðið.“

Öflugur vettvangur fyrir konur

Valdís segir nýtt hlutverk sitt sem formaður Kvenna í orkumálum leggjast afar vel í sig. Félagið hafi á tíu árum byggt upp sterkt tengslanet og orðið mikilvægur vettvangur fyrir konur innan geirans.

„KÍO hefur verið starfandi í tíu ár og á þeim tíma hefur mikið breyst til batnaðar og félaginu vaxið ásmegin. Með mér í stjórninni er nýr og öflugur hópur sérfræðinga úr röðum bakhjarla okkar, konur úr öllum áttum geirans sem koma með mikinn kraft og dýrmæta þekkingu í starfið. Með þennan kraft í stjórninni er ekki annað hægt en að vera spennt og bjartsýn fyrir starfinu fram undan.“

Hún lýsir formennskunni sem bæði ábyrgðarmiklu og hvetjandi hlutverki. „Þetta er auðvitað mikil traustsyfirlýsing og bara virkilega hvetjandi. KÍO hefur unnið frábært starf á undanförnum árum og mér finnst spennandi að fá að taka við og halda áfram að byggja ofan á það sem þegar hefur verið gert. Við stjórnin munum tryggja að KÍO verði áfram öflugt hreyfiafl.“

Að mati Valdísar skiptir fjölbreytileiki miklu máli þegar kemur að þróun orku- og veitugeirans til framtíðar. Hún bendir á að geirinn hafi lengi byggst mikið á tengslaneti og því hafi KÍO gegnt mikilvægu hlutverki við að skapa vettvang fyrir konur. „KÍO hefur skapað vettvang þar sem konur þvert á fyrirtæki, allt frá nýútskrifuðum sérfræðingum yfir í reynslubolta í bransanum, geta skipst á hugmyndum, veitt hver annarri stuðning og lyft hver annarri upp. Þetta eykur bæði starfsánægju og heldur konum lengur innan geirans.“

Valdís segir það skipta miklu máli til lengri tíma litið. „Það er mikilvægt til að byggja upp vaxandi hóp reyndra einstaklinga sem hafa síðan mikið af mörkum að leggja þegar kemur að því að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Svona eflum við þátt kvenna í orku- og veitugeiranum.“

Enn verk að vinna

Þrátt fyrir framfarir segir Valdís enn mikið svigrúm til úrbóta þegar kemur að kynjahlutföllum innan greinarinnar. „Við höfum skoðað þetta reglulega og sjáum þátttöku kvenna aukast hlutfallslega mest í framkvæmdastjórnum fyrirtækjanna, minna meðal millistjórnenda og enn minna meðal sérfræðinga. Þar sem við eigum hvað lengst í land er flutfall kvenna meðal iðnmenntaðra starfsmanna.“

Jafnvel þótt þróunin sé í rétta átt telur hún fyrirtæki geta gert mun betur hvað viðkemur fjölbreytni. „Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að fjölbreytt teymi auka samkeppnishæfni, veita betri þjónustu og auka arðsemi fyrirtækja. Fólk sem vinnur skrifstofustörf nýtur þó oft meira góðs af aðgerðum fyrirtækjanna til tryggja gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs en störf iðnmenntaðra og í þeim störfum sjáum við að hlutfall kvenna eykst mjög hægt.“

Ný stjórn KÍO hyggst leggja sérstaka áherslu á þann þátt. „Við í nýrri stjórn KÍO ætlum að gera það að forgangsmáli næstu tvö árin að styðja við vinnu við að fjölga iðnmenntuðum konum í geiranum til að fjölbreytileikinn njóti sín á öllum starfssviðum fyrirtækjanna.“

„Þá er þetta er rétti staðurinn“

Að lokum vill Valdís hvetja ungar konur til að skoða starfsmöguleika innan orku- og veitugeirans. „Orku- og veitugeirinn er ótrúlega spennandi og fjölbreyttur, með fjölmörg tækifæri til nýsköpunar og starfsþróunar. Fyrir þau sem vilja vinna að verkefnum sem skipta raunverulegu máli fyrir samfélagið og umhverfið er þetta afar spennandi vettvangur,“ segir hún.

Aðspurð hvers vegna jafnrétti sé lykilatriði fyrir framtíð orkugeirans og hvernig KÍO styðji við þá þróun, segir Valdís skipta sköpum að gera kvenfyrirmyndir sýnilegri, efla tengslanet og bjóða markvissa fræðslu.

„Með því færumst við nær auknu jafnrétti. Um leið styrkjum við greinina í heild og byggjum upp öflugri orkugeira sem er betur undirbúinn fyrir verkefni framtíðarinnar. Við þurfum einfaldlega á fjölbreyttu hugviti og ólíkum sjónarmiðum að halda til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru.“



Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/frettir/kynning/2026/05/29/vid_thurfum_a_ollu_thvi_hugviti_ad_halda_sem_vol_er/

📰 Aðrar fréttir

Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
BBC Verify has identified 254 incidents from the past three years the Israeli military said it is reviewing after being accused of harm.
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
📅 15.10.2026 👁️ 1
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
China is the North's largest trading partner and a lifeline against the sanctions Pyongyang faces.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
📅 14.10.2026 👁️ 1
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
SOS Children's Villages International has acknowledged that more than 140 children were taken to its facilities by Syrian security services.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
📅 14.10.2026 👁️ 1
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
New legislation is being tabled in Australia's parliament on Thursday to force big tech to allow users to switch off algorithms which send them recomm...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...