„Það er búið að blunda í huga okkar lengi að langa til að opna veitingastað,“ segir Bjarni Hjartarson en hann og eiginkona hans Aldís Vala Marteinsdóttir opnuðu um helgina veitingastaðinn OSSO í Granda Mathöll.
Stofnun staðarins er ástríðuverkefni þeirra beggja, en Bjarni er bílahönnuður og Aldís Vala förðunarfræðingur og nuddari. En hvernig skyldi áhuginn á ítalskri matargerð hafa byrjað?
„Ég bjó í nokkur ár á Ítalíu, nánar tiltekið í Torino á Norður-Ítalíu, þar sem ég var að læra bílahönnun,“ segir Bjarni. „Þar kviknaði ástríða fyrir matseld og sérstaklega ítalskri matargerð frá þessu svæði. Þar kynntist ég mínum uppáhaldsrétti sem er osso buco, eða hægeldaður nautaskanki, og okkur langaði svolítið að vera með stað sem væri í anda þessarar matargerðar og bjóða upp á okkar uppáhaldsrétti frá Ítalíu.“
Það tekur tímann sinn að elda osso buco eða sex klukkustundir að sögn Bjarna. „Við verðum með fjóra aðalrétti í boði daglega og auk osso buco eru það lasagna, spaghetti carbonara og tagliatelle ragù. Svo erum við með talsvert af smáréttum og Aldís býr til sitt einstaka tiramisú sem vinir okkar og fjölskylda þekkja vel.“
Talandi um fjölskyldur, þá er OSSO sannkallað fjölskyldufyrirtæki og hjónin Aldís og Bjarni standa bæði í brúnni og elda. „Við opnuðum síðasta laugardag eftir að hafa sérstakt opnunarteiti á fimmtudaginn sem heppnaðist frábærlega og það hefur verið mikið að gera síðan. Við fáum hjálp frá nánustu aðstandendum núna og erum að finna taktinn okkar í þessu,“ segir Bjarni.
„Við eigum að fá vínveitingaleyfið í vikunni, og þá verðum við með ítalskt vín, bæði rauðvín, hvítvín og freyðivín og limoncello. Síðan ætlum við að bjóða upp á ítalska drykkinn aperol spritz og fleiri spritza og erum viss um að það verði vinsælt í sumarsólinni,“ segir hann og bætir við að það verði ítölsk stemning á Grandanum í sumar.
Alltaf nóg að gera
Þegar Bjarni er spurður hvort bílahönnunin sé þá komin á kantinn með stofnun veitingastaðarins segir hann svo ekki vera, en hann er yfirhönnuður Ísar fjallajeppa.
„Á sama tíma og við vorum komin á fullt að undirbúa veitingastaðinn fór allt á flug í því verkefni svo það er nóg að gera,“ segir hann og virðist bara hress með það eins og dæmigerður Íslendingur.
„Það skiptir miklu máli að við séum saman í þessu fjölskyldan. En við vorum búin að ganga með hugmyndina að veitingastaðnum lengi og við ákváðum að láta drauminn rætast.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.