Í viðtali við Fox News í dag sagði Trump að von væri á frekari árásum gegn Íran.
„Við ætlum að fokking lúskra á þeim.“
Við það bætti Trump svo að næstu árásir gegn Íran yrðu harðar og líkti þeim við barsmíðar. Hann hélt því í senn fram að viðræður milli ríkjanna myndu halda áfram.
Trey Yingst, blaðamaður Fox, fór í dag yfir viðtal sitt við Trump í morgun.
"We're going to beat the fuc*ing sh*t out of them," President Trump told Fox News after Iran launched a surprise attack against U.S. forces. "We'll be hitting them hard."
— Trey Yingst (@TreyYingst) July 29, 2026
The President says U.S. strikes overnight against Iran-backed militias in Iraq were coordinated with the… pic.twitter.com/AeLbEGFCFi
Bandaríkjamenn hættu árásum á Íran um helgina, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum sem hófust eftir að vopnahlé gaf eftir. Í aðdraganda þeirrar ákvarðanar lýsti Trump því yfir að hann væri að íhuga að auka umfang árása gegn Íran talsvert.
Á föstudaginn fundaði hann þó með ráðgjöfum sínum og herforingjum en margir á þeim fundi eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum af stöðunni og dregið í efa að frekari árásir myndu skila tilætluðum árangri.
Þá töluðu herforingjar um áhyggjur af því hve mikið væri búið að ganga á birgðir Bandaríkjamanna af flugskeytum í loftvarnarkerfi, vegna skotflauga og drónaárása Írana á nágranna ríki sín og bandaríska hermenn á svæðinu.
Sjá einnig: Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum
Bandaríska hugveitan Center for strategic & international studies birti í vikunni greiningu á birgðastöðu Bandaríkjamanna á flugskeytum í Patriot- og THAAD-loftvarnarkerfi.
Áður en átökin hófust áætla sérfræðingar hugveitunnar að Bandaríkjamenn hafi átt 2.330 flugskeyti í Patriot og 452 í THAAD.
Nú er talið að fjöldinn sé 759-827 flugskeyti í Patriot og 234-278 í THAAD.
Skyndiárásir í nótt og í morgun
Nokkurs konar friður hefur því ríkt síðan um helgina en það breyttist í nótt. Þá skutu Íranir skotflaugum að bandarískum hermönnum í Jórdaníu. Ráðamenn í Tehran sögðu einnig að skotið hefði verið á þrjú skip ár Hormússundi í morgun.
At 5:45 p.m. ET today, Islamic Revolutionary Guard Corps forces launched multiple ballistic missiles from Iran in an attempted surprise attack on U.S. forces based in the Middle East. All Iranian missiles were successfully intercepted. U.S. forces remain vigilant and at a high…
— U.S. Central Command (@CENTCOM) July 28, 2026
Einnig bárust fregnir af því í morgun að klerkastjórnin hefði hafnað tillögu frá yfirvöldum í Óman um það hvernig hægt væri að halda utan um stjórn Hormússunds í framtíðinni.
Sú tillaga var studd af öðrum ríkjum á svæðinu og snerist í grófum dráttum um að ríkjum á svæðinu, orkufyrirtækjum og eigendum flutningaskipa yrði valfrjálst að greiða í sérstaka sjóði sem nota ætti í að stýra og styðja umferð skipa um Hormússund.
Wall Street Journal segir að þeirri tillögu hafi verið hafnað vegna þess að klerskastjórnini fannst hún óraunhæf. Þá krafðist klerksastjórnin þess að hafa meiri stjórn á sundinu en yfirvöld í Óman, sem liggur við sunnanvert sundið.