Í Kastljósþætti sl. þriðjudag sem fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu út frá sjónarmiði Nei-sinna lýsti viðmælandi af landsbyggðinni áhyggjum sínum af því að verðmætasköpunin færðist úr landi gangi Ísland í Evrópusambandið. Vísaði hann þar til sjávarútvegsins.Þessar áhyggjur eru skiljanlegar, ekki síst í því ljósi að áróður Nei-sinna hefur mjög verið á þann veg að aðild leiði til þess að við missum aflaheimildir úr landi, útlendingar muni koma og kaupa upp alla íslenska útgerð og hætta að vinna afla hér á landi.
Verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi verður til innan ESB – myndi flytjast heim með aðild