Landsþing Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, fór fram yfir tvo daga um helgina. Sverrir Páll Einarsson, laganemi, var endurkjörin formaður Uppreisnar en María Malmquist var kjörin varaformaður.
Svonefnd Uppreisnarverðlaun voru veitt Ungum Evrópusinnum en verðlaunin eru sögð veitt sem þakklætisvottur í garð þeirra sem hafi skarað fram úr í þágu frjálslyndis og almannahagsmuna.
Framkvæmdastjórn Uppreisnar rökstuddi valið með því að samtökin hefðu skarað fram úr í að sporna gegn upplýsingaóreiðu og stuðla að upplýstri, góðri og málefnalegri umræðu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.