Verðbólga hjaðnaði lítillega í apríl og var 5,2 prósent, samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Hún var 5,4 prósent í mars. Þeir liðir sem leiddu helst til hækkunar neysluverðsvísitölu voru húsnæði, eldsneyti og flugfargjöld til útlanda.
Verðbólga hafði fram að þessari síðustu mælingu verið á uppleið allt frá því í nóvember þegar hún mældist 3,7 prósent. Það var minnsta verðbólga í fimm ár þó að enn væri hún vel yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans, það er 2,5 prósent.
Verðbólga rauk upp í desember þegar hún var 4,5 prósent og hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár.
Fréttin verður uppfærð.