Veðurstofan varar við miklu eldingaveðri sem safnast nú saman á hafi úti suðaustantil við landið.
Marcel de Vries, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir sérstakt að sjá svo öflugt eldingaveður á þessum slóðum og eru loftför beðin um að fara um með gát. Einhverjar líkur eru að veðrið nái á land.
Gul veðurviðvörun gengur nú sömuleiðis yfir Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Miðhálendið og Austfirði.
Heitt og kalt loft mætist yfir landinu
Segir Marcel að spá hafi að mestu gengið eftir. Byrjað sé að kólna og snjóa á stórum úrkomusvæðum. Snjóað hafi á bæði í byggð og á fjallvegum á Egilsstöðum.
Búist sé við svipuðu veðri á morgun, en þó ekki gert ráð fyrir miklum vindi. Seint á sunnudag hlýnar svo og dregur úr úrkomu.
Marcel segir orsök hretsins nú vera að hlýir sunnan vindar og kalt loft úr norðri mætist nú yfir Austurlandi, og að þessi skil skapi mikla úrkomu.
Í vikunni megi búast við að veður fari hlýnandi en þó verði þungbúið á landinu öllu með smá vætu.