Það gengur í ákveðna norðvestanátt seint í kvöld og nótt á Suðaustur- og Austurlandi. Í athugasemd veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að vindhviður geti náð allt að 30 metrum á sekúndu í vindstrengjum, allt frá Skaftafelli og austur á Egilsstaði.
Veðrið getur því reynst ferðalöngum varasamt, sérstaklega þeim sem fara um á bílum sem taka á sig mikinn vind.
Það dregur heldur úr vindi á þessum slóðum síðdegis á morgun. Það lægir svo nærri hádegi á sunnudag.