Píratinn Guðni Freyr Öfjörð varar við sölu á Ljósleiðaranum, en að sögn verðandi borgarstjóra, Hildar Björnsdóttur, hefur nýr meirihluti meðal annars rætt um að selja bæði Ljósleiðarann og Carbfix. Guðni Freyr segir í grein sinni hjá Vísi að við slíka sölu muni skapast hætta á einokun, fákeppni og hærra verði.
„Hér skulum við átta okkur á því að Ljósleiðarinn var stofnaður sem opinbert innviðafyrirtæki með það markmið að brjóta upp einokun á fjarskiptamarkaði og tryggja neytendum ódýrara og betra internet. Það er gert í gegnum opið kerfi þar sem öll fjarskiptafélög eins og Nova, Vodafone og Hringdu geta selt sína þjónustu.
Ef Ljósleiðarinn verður seldur til einkaaðila fylgir því mikil áhætta, þar sem einkafyrirtæki starfa fyrst og fremst með það að markmiði að hámarka hagnað hluthafa. Ef innviðirnir lenda í höndum einkaaðila (eða vina og vandamanna hægrimanna), eða ef stórt fjarskiptafélag eignast hlut, er hætta á að heildsöluverðskrá til fjarskiptafélaga hækki. Það myndi á endanum skila sér í hærra mánaðargjaldi fyrir internet hjá almenningi.“
Sem opinbert fyrirtæki hafi Ljósleiðarinn það hlutverk að tryggja öllum íbúum og fyrirtækjum á þjónustusvæðinu hágæða tengingu, óháð búsetu. Einkafyrirtæki eigi til að forgangsraða fjárfestingum þar sem byggð er þéttust og þar með sé hægt að græða hraðar. Líklegt sé að einkafyrirtæki hafi minni áhuga á að viðhalda og endurnýja kerfi í eldri og fámennari hverfum þar sem kostnaður er mikill en hagnaður lítill.
„Hér sjáum við aðra ástæðu þess að hægri stefnan býr oft til stéttarskiptingu.“
Internet sé í dag jafn nauðsynlegt og vatn eða rafmagn. Eins sé um þjóðaröryggismál að ræða. Við einkavæðingu missi almenningur, í gegnum kjörna fulltrúa, beina stjórn á því hvernig þessum mikilvægu innviðum er stýrt. Guðni sér eins fyrir sér að markaðurinn muni þróast í hreina fákeppni sem opni möguleika á verðsamráði með tilheyrandi tjóni fyrir neytendur. Því skorar hann á minnihlutann í borgarstjórn að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva sölu Ljósleiðarans.
„Svo er það áhættan fyrir samkeppni á markaðnum. Ljósleiðarinn og Míla eru tveir stærstu innviðakaplar landsins. Eftir að Míla var seld úr eigu Símans til erlenda sjóðsins Ardian, hefur Ljósleiðarinn verið mikilvægasta opinbera mótvægið á markaðnum til að tryggja samkeppni. Ef Ljósleiðarinn yrði einkavæddur gæti markaðurinn þróast út í hreina fákeppni tveggja risastórra einkafyrirtækja (Mílu og Ljósleiðarans), sem gætu átt auðveldara með að sammælast um verðlagningu eða dregið úr hvata til að bjóða betri kjör.
Ég skora á minnihlutann í borgarstjórn að gera allt í sínu valdi til þess að stöðva það að eigur borgarbúa verði einkavæddar. Sagan sýnir okkur að það boðar aldrei gott þegar Sjálfstæðisflokkurinn vill einkavæða eitthvað. “