Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru hvött til að gæta sín á tölvupóstum sem virðast ýmist vera kvartanir eða óvenju stórar pantanir. Rökkvi Vésteinsson segir að svo virðist sem mikið sé um slíkar svindltilraunir og lýsir tveimur aðferðum í færslu í Facebook hópnum Baklandi ferðaþjónustunnar.
Í fyrra tilvikinu segist sendandinn hafa orðið fyrir dónaskap af hálfu starfsmanns. Hann hótar kæru og slæmum umsögnum og segir gögn um samskiptin fylgja í viðhengi. Rökkvi varar við að tilgangurinn geti verið að fá viðtakandann til að opna skrá með skaðlegum hugbúnaði.
Stór pöntun sem á að endurgreiða að hluta
Hin aðferðin hefst á fyrirspurn um dýra bókun eða stór vörukaup. Sendandinn leggur áherslu á að málið sé áríðandi og óskar jafnvel eftir viðbótum, svo sem tónlistaratriði með ferðinni. Síðar er hluti pöntunarinnar afbókaður og farið fram á endurgreiðslu.
Samkvæmt lýsingu Rökkva er hættan sú að upphaflega greiðslan reynist innistæðulaus eða verði bakfærð vegna þess að notað hafi verið stolið kort. Fyrirtækið gæti þá tapað því fé sem það hefur þegar endurgreitt.
Rökkvi segir að eitt skýrasta viðvörunarmerkið sé hversu almennir póstarnir séu. Þeir nefni jafnvel ekkert sem tengist fyrirtækinu sérstaklega og í kvörtun um starfsmann sé hann ekki endilega nafngreindur. Hann hvetur fólk til að staldra við áður en það opnar viðhengi eða lætur óvenju freistandi pöntun drífa sig áfram.
Færslan í heild sinni:
„VARÚÐ: Endalausir svind-tölvupóstar
Það virðist vera alveg ógurlega mikið af því að það sé verið að senda tölupósta til að reyna að svindla einhvern veginn á fyrirtækjum í ferðaþjónustu, svo ég vil bara vara við og minna fólk á að vera vakandi.
1) Tölvupóstar sem segja að starfsmaður fyrirtækisins hafi verið brjálæðislega dónalegur við þau og að þau muni kæra, gefa slæmar umsagnir og svo framleiðis. Manni er síðan sagt að þessi dónalegu samskipti séu í viðhenginu – en viðhengið inniheldur vírus, spyware eða annan ófögnuð.
2) Verið að reyna að bóka eða panta eitthvað mjög dýrt af manni, oft reynt að segja að þetta sé áríðandi og til dæmis segja að þetta sé vegna stórafmælis, fólkið ætli bara til Íslands fyrir þetta sem þau ætla að bóka hjá þér osfrv. Gjarnan verið að biðja um auka skemmtun, eins og listamenn til að spila tónlist ef þetta er heimsókn, eða bara ógurlegt magn af vöru ef þetta eru vörukaup. Þessir póstar eru gjarnan mjög almennir, segja lítið eða ekkert sem tengist fyrirtækinu beint og gætu alveg eins verið sendir á 1000 önnur svipuð fyrirtæki. Það sem er síðan reynt er að borga með stolnu korti eða innistæðulausri greiðslu á einn eða annan hátt, segjast síðan þurfa að afbóka hluta pöntunar, til dæmi tónlistaratriðið eða hluta af vörunum sem átti að kaupa og krefjast endurgreiðslu. Fyrirtækið endurgreiðir og tapar því fé, en greiðslan sem þú fékkst frá þeim er annað hvort innistæðulaus, eða bakfærð vegna stolins korts.
Hafið alltaf í huga hvort tölvupóstur sé of almennur. Er ekkert minnst á sem einkennir ykkar fyrirtæki, Ísland eða neitt sértækt? Ef það er verið að kvarta yfir starfsmanni, er hann ekki einu sinni nefndur? Gæti svona tölvupóstur verið sendur á 1000 fyrirtæki um allan heim? Er þetta of langsótt og ýkt? Fólk að koma hálfan heiminn að bara til að fara og heimsækja fyrirtækið ykkar í einn stuttan túr?
Það sem er oft gott að gera er að hreinlega googla og/eða spyrja gervigreind hvort ákveðinn tölvupóstur líti út eins og algeng svindl og hvað sé þá verið að reyna með svindlinu. Maður fær oft mjög nákvæma útlistun á því hvað er í gangi með því.“