Þetta segir í ábendingu til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Undir Eyjafjöllum, milli Skaftafells og Hafnar, á sunnanverðum Austfjörðum, í utanverðum Fljótsdal og Vopnafirði megi búast við norð- og norðvestan átt og geti hviður náð allt að 25 metrum á sekúndu.
Slíkur vindur geti verið varasamur fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind.