Var at­vinnu­laus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók á­kvörðun sem breytti öllu - Vísir

Var at­vinnu­laus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók á­kvörðun sem breytti öllu - Vísir

Var at­vinnu­laus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók á­kvörðun sem breytti öllu - Vísir

Í dag eru þrettán ár liðin frá því Sunna Ben drakk síðast áfengi. Á þeim tíma hefur hún byggt upp fjölbreyttan feril sem ljósmyndari og DJ, stofnað fjölskyldu með Andra Frey Þorgeirssyni tónlistarmanni og sviðstjóra Hörpu, eignast tvo syni og gengið í hjónaband. Haustið 2025 létu þau Andri pússa sig saman í litlu og persónulegu brúðkaupi þar sem synir þeirra, fjölskylda og vinir fögnuðu með þeim.

„Daginn sem þrettán ára edrúafmælið mitt kom upp var ég líka að fá tölvupóst frá skrifstofu forsetans um hvort það mætti nota myndir sem ég hafði tekið. Þá hugsaði ég bara: „Vá, hvað er margt búið að gerast á þessum tíma.“ Núna er ég rosalega glöð því mér hefur tekist að samtvinna öll áhugamálin mín og ástríðuna mína í ógeðslega skemmtilegan feril. Stundum trúi ég því ekki hvað ég er að gera í vinnunni og hvað ég fæ stór og fjölbreytt verkefni,“ segir Sunna.

Ætlaði heim að „meika það“

Sunna útskrifaðist úr myndlistarnámi í Amsterdam árið 2012 og þá lá leiðin heim til Íslands. 

Hún var 23 ára gömul og planið var ekki flókið: Hún ætlaði að verða myndlistarkona.

„Ég útskrifaðist ung, fór mjög ung út og kom heim og hugsaði: „Jæja, nú ætla ég bara að meika það.“ En það er auðvitað aðeins auðveldara sagt en gert. Maður þarf alltaf að vinna annars staðar til að geta búið til myndlist samhliða.“

Sunna hoppaði á milli starfa fyrsta árið eftir heimkomuna. Eitt þeirra endaði með því að hún missti vinnuna og fór á atvinnuleysisbætur. Hún var að eigin sögn „atvinnulaus, skítblönk og á algjörum bömmer“.

„Ég hafði verið að vinna hjá manni sem fannst ekkert endilega þurfa að borga laun. Ég missti því vinnuna, átti engan pening og var að byrja á atvinnuleysisbótum með mjög lítil bótaréttindi.“

Blackout nánast í hvert skipti

Á sama tíma var samband Sunnu við áfengi orðið erfitt.

„Fólk í kringum mig var ekki endilega að kveikja á því hvað ég átti í erfiðu sambandi við áfengi, en ég var oft í marga daga að ná mér líkamlega og andlega eftir djamm, sem kom sér sérlega illa þegar það liðu aldrei margir dagar á milli djamma.“

Sunna segir sig hafa farið mjög oft í „blackout“ þegar hún drakk. Hún mundi þá lítið eða ekkert eftir stórum hluta kvöldsins. Óvissan sem beið morguninn eftir var sérstaklega erfið, eins og hún lýsir því.

Sunna hefur nú verið án áfengis í þrettán ár. Upphaflega ætlaði hún aðeins að taka sér stutt hlé en fann fljótt að hún vildi halda áfram.Vísir/Anton Brink

„Það fylgir miklu óöryggi að muna aldrei neitt og ég er líka kvíðamanneskja. Þá er áfengið bara olía á eldinn. Fyrir mér var þetta stöðugur kvíði og vanlíðan: „Oh my god, hvað gerðist í gær? Gerði ég mig að fífli? Sagði ég eitthvað sem ég átti ekki að segja?““

Stundum var kvíðinn svo mikill að hún hringdi í vini sína til að kanna hvað hefði raunverulega gerst.

„Ég gat ímyndað mér að ég hefði verið ógeðslega dónaleg við einhvern og svo hringdi ég í vini mína daginn eftir og spurði: „Var ég til vandræða í gær?“ Og þau bara: „Ha? Nei, þú varst bara rosalega hress og svo dast þú ofan af borði.“ Maður fer sérstaklega illa út úr þessu ef maður er kvíðinn fyrir.“

Sunna var síðar greind með ADHD og fékk kvíðalyf. Þegar hún hætti að drekka hafði hún hvorki greiningarnar né þau bjargráð sem hún hefur í dag og segir aukinn skilning á eigin heila- og taugastarfsemi hafa hjálpað sér að sjá ýmislegt í nýju ljósi.

Beyoncé og edrúglamúrinn

Hugmyndin um að hætta að drekka hafði þó kviknað löngu áður en Sunna lét verða af því. Ólíkt mörgum sem sjá fyrir sér edrúmennsku sem fórn fannst henni eitthvað heillandi við hana.

„Mig langaði að vera edrú en ég ímyndaði mér að ég hefði ekki sjálfstjórnina í það. Mér fannst einhvern veginn svo glamúrus að drekka ekki. Ég elska til dæmis Beyoncé og á þessum tíma fannst mér ég aldrei sjá hana með vín í hendinni, heldur var hún alltaf flott og glæsileg og með allt á hreinu.“

Svo kom september 2013 og Sunna ákvað að prófa að sleppa áfenginu í einn mánuð. Fjárhagurinn átti stóran þátt í þeirri ákvörðun.

„Ég átti engan pening, var að byrja á atvinnuleysisbótum og átti mjög lítil bótaréttindi. Þetta voru einhverjir tíu þúsund kallar fyrir ákveðið tímabil. Það var enginn að fara mikið að djamma fyrir það. Svo kom október og Meistaramánuður tók við og þá hugsaði ég bara: Ókei, ég held áfram. Þá var þetta líka svolítið sjálfsagt og fleiri voru kannski ekkert að drekka. Svo fór djammið smám saman aftur í gang en ég fann að mig langaði ekkert til þess að byrja aftur að drekka.“

Heilinn hætti að semja hryllingssögur

Eftir aðeins nokkrar vikur fór Sunna að eigin sögn að taka eftir því að henni leið öðruvísi, ekki bara líkamlega.

„Eftir kannski einn mánuð fann ég hvað mér leið miklu betur. Heilinn var ekki lengur stöðugt að semja hryllingssögur um allt sem hefði getað gerst kvöldið áður. Kvíðinn minnkaði gífurlega mikið líka.“

Sunna var þá nýbyrjuð í líkamsrækt og uppgötvaði líka hversu miklu auðveldara var að æfa þegar helgarnar fóru ekki í drykkju og þynnku.

„Ég var tiltölulega nýbyrjuð í líkamsrækt og fann hvað það var geðveikt að geta alltaf farið á æfingu. Ég komst á æfingar og gat æft ógeðslega mikið og fundið mun á forminu og getunni í fyrsta sinn. Það var mjög hvetjandi. Mér leið svo vel.“

Þegar Sunna tók ákvörðunina var hún ung, atvinnulaus og í mjög þröngri fjárhagsstöðu. Hún var nýkomin heim úr myndlistarnámi og framtíðin alls ekki eins skýr og hún hafði vonast til.Vísir/Anton Brink

Stærsti ávinningurinn var þó kannski sá sem flestir hugsa minnst um: tíminn.

„Partí og djamm og drykkja taka náttúrulega rosalega mikinn tíma. Svo kemur tíminn sem tínist í daginn eftir þegar maður vaknar timbraður og allur dagurinn er eiginlega ónýtur.“

Í dag, þegar Sunna starfar sjálfstætt, hefur tíminn enn meira vægi.

„Svo er brjálaður sparnaður falinn í þessu. Maður finnur sér auðvitað eitthvað annað til að eyða peningunum í en þetta sparar mjög mikið. Sérstaklega þegar maður selur tímann sinn eins og ég geri.“

Erfiðast að vera ung og edrú

Það var þó ekki þannig að allt yrði skyndilega einfalt. Félagslegi hlutinn varð ein stærsta áskorunin. Sunna var ung, einhleyp og langaði ekki að vera einhleyp að eilífu. Áfengi var hins vegar nánast innbyggt í stefnumót og félagslíf.

„Ég var varla að deita í að minnsta kosti ár, kannski lengur. Maður hugsaði: „Hvernig á ég að vera? Það er enginn annar hérna edrú.“ Þetta var svolítið einangrandi og maður þurfti einhvern veginn að venjast því að fara í partí og sötra sódavatn á meðan allir aðrir voru með bjór.“

Við það varð henni sífellt ljósara hversu stóran sess áfengi skipar í íslensku samfélagi.

„Það er ótrúlegt hvað áfengi er stór hluti af lífinu hjá okkur. Það er rosalega normalíserað. En þegar maður er kominn aðeins inn í edrúmennskuna er ekkert mál að fara í partí edrú.“

Sunna tekur þó skýrt fram að hennar reynsla sé ekki mælikvarði á stöðu annarra. Sumir glími við alvarlegan fíknisjúkdóm, þurfi meðferð og geti ekki verið í kringum áfengi.

„Það þarf að virða það. En fyrir okkur sem höfum svigrúm til að taka þessa ákvörðun og hún gengur vel, að því gefnu að maður hætti af eigin vilja en sé ekki að berjast við fíknisjúkdóm sem kann að gera þess háttar erfitt og er allt annar handleggur, þarf maður ekkert að hætta að mæta. Maður má alveg mæta og vera edrú og hafa gaman.“

Edrú í miðju skemmtanalífinu

Það er viss mótsögn í því að Sunna starfar að stórum hluta einmitt í umhverfi þar sem áfengið flæðir út um allt. Hún hefur DJ-að mikið bláedrú og segir það ekki aðeins ganga vel heldur finnur hún líka mun á eigin frammistöðu.

Sunna starfar mikið í skemmtanalífinu sem plötusnúður en segir ekkert erfitt að vera umkringd fólki sem drekkur. Hún kann vel við að geta lokið vinnukvöldi og mætt fersk inn í næsta dag.Vísir/Anton Brink

„Mér finnst ekkert erfitt að vera í kringum fullt af fólki sem er að drekka stíft, þvert á móti ýtir það undir löngunina hjá mér til að vera edrú. Ég klára vinnuna mína, reyni að gleðja fólkið og fá það til að dansa og líða vel. Svo vakna ég hress daginn eftir og á allan daginn fyrir mér.“

Sunna rifjar upp að á námsárunum í Amsterdam hafi hún kynnst annarri drykkjumenningu en heima á Íslandi.

„Umgjörðin þar í kringum vín og bjór var allt öðruvísi. Þar er áfengi náttúrulega ódýrara en hér og auðveldara að nálgast það. Mér fannst Hollendingar almennt kunna miklu betur að fara með áfengi heldur en Íslendingar. Ég kunni þetta hins vegar ekki og þessi hugsun að „fá sér bara einn“ var bara mjög framandi fyrir mér.“

Fjölskyldan sem kom síðar

Líf Sunnu tók síðan fleiri stórum breytingum. Hún og Andri Freyr eignuðust fyrsta son sinn á gamlársdag 2018 eftir sextán klukkustunda fæðingu. Drengurinn, fyrsta barn parsins, var fjórtán merkur og sagður afar hárprúður þegar hann kom í heiminn.

Síðar eignuðust þau annan son og í nóvember 2025 giftu Sunna og Andri sig í því sem hún sjálf kallaði „ponsulítið brúðkaup“. Athöfnin var lítil og persónuleg, synir þeirra tóku þátt ásamt fjölskyldu og vinum og dragdrottningin Gogo Starr skemmti gestum.

Sunna hefur sjálf velt því upp hvort hún hefði kynnst Andra, eignast strákana eða byggt upp núverandi líf hefði hún haldið áfram að drekka og telur það sjálf nokkuð ólíklegt, þótt það sé kannski ekki mjög auðvelt að spá í hvernig önnur útgáfa af lífinu hefði þróast.

Edrúmennskan er einfaldlega orðin einn af rauðu þráðunum í lífi hennar.

Sunna hefur velt því fyrir sér hvort fjölskyldulífið og ferillinn sem hún á í dag hefðu orðið að veruleika ef hún hefði haldið áfram á sömu braut með áfengiðVísir/Anton Brink

Vill ekki prédika

Þrátt fyrir að edrúmennskan hafi reynst Sunnu vel er henni mikið í mun að sagan hennar verði ekki að einhvers konar bindindisprédikun.

„Í mínu nærumhverfi er ég svo gott sem eina edrú manneskjan og ég vil ekki að fólk haldi að ég sé eitthvað að prédika. Fólk verður bara að fylgja eigin innsæi og þörfum þegar kemur að lífsstílsákvörðunum. Ég veit að það er ekki mitt að reyna að sannfæra aðra um edrúmennsku. Fólk veit að hún stendur því til boða og af fenginni reynslu veit ég að margt fólk veit að það er alltaf hægt að heyra í mér varðandi ráð um hana.“

Það skiptir Sunnu þó miklu máli að fólk viti að hún sé ekki að dæma það fyrir að drekka.

„Ég vinn mikið í kringum drykkju og oftast gengur það hnökralaust fyrir sig. Svo hjálpar örugglega til að ég er með afar slakt minni, svo ekki hafa áhyggjur af því að ég sé að fara að muna eftir einhverju vandræðalegu sem gerðist á djamminu bara af því ég er edrú.“

Á dögunum birti hún færslu á Facebook í tilefni af 13 ára „edrúafmælisdeginum“.

„Ég var að vinna á viðburði í gærkvöldi og alls konar fólk kom að tala við mig um þessa færslu. Það er svo fyndið því ég er búin að vera edrú svona lengi en hef ekkert verið alltaf að tala um það. Þegar maður gerir það loksins kemur fólk til manns og vill ræða þetta. Eftir svona langan tíma er þetta orðið pínu eins og hvort maður drekkur kaffi eða ekki.“

Þrettán árum eftir septembermánuðinn, sem átti aðeins að vera tímabundin tilraun, er það ekki fráhvarfið frá áfenginu sjálfu sem virðist standa sterkast í huga Sunnu, heldur hvað unga konan sem tók ákvörðunina hafði litla trú á því að hún gæti breytt lífi sínu.

„Mér þykir voða vænt um lífið mitt í dag og mér finnst ógeðslega gott að hafa getað verið svona lengi án áfengis. Ég var svo lítil í mér og hélt að þetta væri bara ekki hægt, að ég yrði alltaf eins og ég var. Enginn veit hvort þetta virkar fyrir sig nema hann prófi. Það var allavega þannig hjá mér.“

#atvinnulaus #bömmer #skítblönk #var #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930995d/var-atvinnulaus-skitblonk-og-a-bommer-thegar-hun-tok-akvordun-sem-breytti-ollu

📰 Aðrar fréttir

Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss Fréttin21. október 2026Innlent, Stjórnmál, TrúmálL...
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
Sjónvarpsstjarnan Kelly Osbourne greinir frá því að hún sé búin að þyngjast um tæp 14 kíló og henni líði betur, en margir hafa haft miklar áhyggjur af...
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
Hulunni var svipt af leyndarmáli Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, í morgun. Bætti hún um betur og afhjúpaði sönnu söguna þar að baki.
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Diop. Á Instagram lýsir Guðrún sér sem ferðasjúkri tó...
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af sta...
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
📅 21.10.2026 👁️ 1
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
Landsréttur hefur birt gæsluvarðhaldsúrskurði tveggja sakborninga í Straumsvíkurmálinu svokallaða, en í sumar var 106 kílóum af kókaíni smyglað til la...
Útgjöld Garðabæjar hækka og afgangur minnkar
📅 21.10.2026 👁️ 1
Útgjöld Garðabæjar hækka og afgangur minnkar
Samþykkt var á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær að bæta 383 milljóna króna útgjöldum við fjárhagsáætlun þessa árs. Þetta á að hluta til að fjármagna m...
Fjar­stætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fjar­stætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona - Vísir
„Það eina sem ég fann eða sá voru blæðingar,“ segir Auður Helgadóttir Möller, sem greindist með krabbamein neðarlega í ristli í mars 2025. Hún hummaði...
„Mjög óheillavænleg þróun“ - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Mjög óheillavænleg þróun“ - Vísir
Nær tvöfalt fleiri fengu geðrofslyfinu quetiapíni ávísað hér á landi í fyrra en fyrir tíu árum, eða um ellefu þúsund og fjögur hundruð manns. Tæplega ...
Lifeguard rescues man from sea in Playa Blanca
📅 21.10.2026 👁️ 1
Lifeguard rescues man from sea in Playa Blanca
 A 48-year-old man was taken to hospital after being rescued from the sea at Playa Dorada in Lanzarote yesterday afternoon (Tuesday). The emergency ha...
Efast um að vilja Al­þingis sé fylgt í jafnlaunamálum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Efast um að vilja Al­þingis sé fylgt í jafnlaunamálum - Vísir
„Við efumst þannig um að það sé í raun verið að framfylgja vilja löggjafans því að markmiðið var jú að draga úr regluverki og kostnaði fyrir fyrirtæki...
Full­trúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Full­trúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín - Vísir
Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar, flaug til fundar við Pútín í Pétursborg eftir að hann fundaði með Volodýmýr Selenskí, forseta Ú...
Civil servant admits he 'made mistakes' juggling five government jobs
📅 21.10.2026 👁️ 1
Civil servant admits he 'made mistakes' juggling five government jobs
Kashim Chowdhury was contracted for 183 hours a week, more than the number of hours in seven days.
Lýsir því yfir í viðtali að hann vilji sættir - Hvernig mun Vilhjálmur bregðast við ?
📅 21.10.2026 👁️ 1
Lýsir því yfir í viðtali að hann vilji sættir - Hvernig mun Vilhjálmur bregðast við ?
Vilhjálmur prins mun ekki hafa samband við Harry prins í bráð, þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi nýlega opinberlega óskað eftir sáttum.„Mun Vilhjálmu...
Romeo Beckham á hraðri leið fram úr Brooklyn - „Erfitt fyrir hann“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Romeo Beckham á hraðri leið fram úr Brooklyn - „Erfitt fyrir hann“
Það gæti verið að Romeo Beckham verði farsælasti Beckham-bróðirinn, eldri bróður sínum til ama. The Sun greinir frá.Samkvæmt breska miðlinum er Romeo ...
Ragnhildur nýbúin að eiga afmæli og ætti að vera óhamingjusöm - En þetta er raunin
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ragnhildur nýbúin að eiga afmæli og ætti að vera óhamingjusöm - En þetta er raunin
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir marga gera sömu mistök beint eftir æfingu, að borða ekki nóg kolvetni. Hún útskýrir málið ...
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum
Svala Magnea Ásdísardóttir, fjölmiðlafræðingur sem búsett er í sænsku borginni Malmö, gagnrýnir Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfuss, harðlega vegna u...
Two arrested over €45,000 gaming-machine scam in Fuerteventura
📅 21.10.2026 👁️ 1
Two arrested over €45,000 gaming-machine scam in Fuerteventura
Two men have been arrested over an alleged €45,000 scam involving counterfeit gaming-machine prize tickets at an amusement arcade in Morro Jable, sout...
Gagnrýnir stjórnina fyrir verkleysi á Alþingi
📅 21.10.2026 👁️ 1
Gagnrýnir stjórnina fyrir verkleysi á Alþingi
Mjög lítið er að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Ríkisstjórnin hefur aðeins komið með rúmlega þrjátíu af þeim tæplega 160 málum í ...
Woman told Russell Brand he 'treated her like an animal', court hears
📅 21.10.2026 👁️ 1
Woman told Russell Brand he 'treated her like an animal', court hears
The comedian and actor is on trial for charges including rape and sexual assault, which he denies.
Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast - Vísir
Í fréttatímanum er einnig greint frá því að hálka hafi verið á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi ve...
Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður - Vísir
Góðgerðartreyjan er afrakstur samstarfs á milli Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs og nær nú hápunkti þessa viku þegar treyjan, sem er framle...
Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er bara eitthvað sem við þurfum alltaf að viðurkenna að þegar við fórum í stórar breytingar þá áttuðum við okkur á því að kannski gengum við aðei...
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann í síðustu viku af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Hann var ákærður fyrir að senda stúlkunni ítreka...
Aberfan survivors' emotional memories 60 years on
📅 21.10.2026 👁️ 1
Aberfan survivors' emotional memories 60 years on
Four people who were children at the time of the Aberfan disaster recall the moment when a coal waste tip collapsed 60 years ago.
Hákarl varð konu að bana – Var í sjósundi með félögum sínum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hákarl varð konu að bana – Var í sjósundi með félögum sínum
Janine Lochrenberg, 65 ára, lést eftir hákarlaárás þegar hún var í sjósundi með félögum sínum við vinsæla baðströnd í gærmorgun. Sundfélagarnir komu h...
Sveitarstjórinn vann hjá Samherja á sínum tíma og sat í stjórn Fiskidagsins mikla
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sveitarstjórinn vann hjá Samherja á sínum tíma og sat í stjórn Fiskidagsins mikla
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, vann við skreiðarsölu frá Íslandi á árunum 1994 til 2018. Á þesssu tímabili starfaði hún meðal...
Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara - Vísir
Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og þrettán annarra þingmanna. Lagt er til að þriggja...
Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið - Vísir
Púðlusafnið er nýtt íslenskt sviðsverk innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder og óvenjulegum púðluarfinum. Styttusafnið hefur legið ósner...
Púðlustyttusafn ömmu varð að leik­sýningu - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Púðlustyttusafn ömmu varð að leik­sýningu - Vísir
Púðlusafnið er nýtt íslenskt sviðsverk innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder og óvenjulegum púðluarfinum. Styttusafnið hefur legið ósner...
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
Þetta segir í ákæru á hendur manninum, sem gefin var út í júlí. Fyrirtaka verður í máli Héraðssaksóknara á hendur honum fyrir Héraðsdómi Suðurlands á ...
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
📅 21.10.2026 👁️ 2
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
Unnur Lilja Andrésdóttir lýsir skelfilegri reynslu sem hún varð fyrir í útskriftarferð í Portúgal. Fimm menn króuðu hana af á skemmtistað.Unnur Lilja ...
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum Kjós­endur í Kali­forníu greiða atkvæði um fimm pró­senta skatt á hreina eign um 200 millj­arða­mær­inga. Be...
Hackers steal children's data after company used 'Password1' for old account
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hackers steal children's data after company used 'Password1' for old account
The data watchdog reprimanded Ogi Networks Limited and Data Cymru after the 2024 ransomware attack.
Smyrill í Norðurmýrinni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Smyrill í Norðurmýrinni
Íbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í hverfinu í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni ti...
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
Þeim sem voru án atvinnu fækkaði milli mánaða en í ágúst mældist atvinnuleysi 6,8 prósent. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentust...
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
📅 21.10.2026 👁️ 1
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
The school went into lockdown and parents gathered at the gates as they waited for news about their children.
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Opið bréf til óþekktra aðila“, tæpri viku eftir að Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar. Han...
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet. Umræða skapaðist um íþr...
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum Fréttin21. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Ann...
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
Ildar „Örvar“ (e. Scar) Galiyev er meðal annars sagður bera ábyrgð á sprengjutilræði í Uppsölum sem varð 24 ára gamalli konu að bana, morði á átján ár...
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfu...
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í H...
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
📅 21.10.2026 👁️ 2
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps Fréttin21. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
📅 21.10.2026 👁️ 2
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
Adrianne Curry gagnrýndi Victoria’s Secret-tískusýninguna harðlega fyrir að fá Kylie Jenner til að koma fram á sýningunni á sunnudagskvöldið, og sagði...
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
Þórður Snær: stál, byrlun og leki Fréttin21. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þórður Snær Júlíusson. Páll Vilhjálmsson...
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
Það er ótrúlegur munur á systrunum Amy og Tammy Slaton, en þeim hefur báðum tekist að léttast gífurlega og lifa heilsusamlegra lífi.Systurnar eru stjö...
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu mil...
Lexíur og leikhúsið
📅 21.10.2026 👁️ 2
Lexíur og leikhúsið
Lexíur og leikhúsið Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu. Högg er enskt verð­launa­leik­rit eftir ...
Mokað allan liðlangan daginn
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mokað allan liðlangan daginn
Framkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnar...