JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Íran enn þurfa að leysa úr nokkrum ágreiningsmálum áður en samkomulag um að binda enda á stríðið geti náðst.
Sagði hann að of snemmt væri að segja til um nákvæmlega hvenær eða hvort aðilar myndu komast samkomulagi.
Fyrr í dag sögðu bandarískir embættismenn að löndin tvö hefðu komist að samkomulagi um ramma samnings og að samkomulagið myndi framlengja vopnahlé um 60 daga og viðræður myndi í kjölfarið hefjast um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans en Íranskir fjölmiðlar drógu þó úr þeim yfirlýsingum.
Í ræðu sinni fyrr í kvöld sagði Vance að helsta bitbein samninganefnda væri nú um auðgun úrans. Sagði hann samningamenn nálægt samkomulagi og að viðræður myndu halda áfram uns niðurstaða fengist.