Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ lætur af störfum í lok vikunnar, eftir að hafa snúið þangað aftur tímabundið fyrir þremur vikum.
Hætti í lok ágúst og sneri aftur mánuði síðar
Valgerður sagði starfi sínu lausu um mánaðamótin ágúst - september og fór þá í leyfi. Hún sakaði stjórnina um óeðlileg afskipti af heilbrigðisstarfi samtakanna, en skömmu áður hafði forstjóri SÁÁ sagt upp.
Um síðustu mánaðamót ákvað Valgerður svo að snúa aftur tímabundið til starfa til að tryggja vinnufrið að eigin sögn og til að SÁÁ og Sjúkratryggingar hefðu svigrúm og frið til að vinna að endurskoðun samnings.
Við það tækifæri sagði Valgerður að með því væri hún ekki að draga uppsögn sína til baka og að ekki lægi fyrir hversu lengi hún yrði að störfum.
Sama ástæða nú og fyrr
Valgerður var ekki tilbúin til að veita viðtal, þegar eftir því var leitað.
Í samtali við fréttastofu sagði hún að ástæða þess að hún hafði ákveðið að láta af störfum nú væri sú sama og áður; stjórn SÁÁ hefði ekki séð ástæðu til að bregðast við ábendingum um óviðunandi afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna.
Hún sagði þetta hafa verið erfiða ákvörðun, en ekkert annað hafi verið í stöðunni.