Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn - Vísir
Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn - Vísir
📅 2026-04-30 11:21:13👁️ 7 lesið
Landsáætlun gegn kyndbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026 til 2030 var kynnt í morgun. Um er að ræða fyrsta skiptið sem slík áætlun er sett fram og er markmiðið að vinna með heildstæðum hætti að aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum á Íslandi.Samanstendur áætlunin af 25 aðgerðum sem flokkaðar eru í sjö málaflokka til að tryggja að Ísland uppfylli skilyrði Istanbúlsamningsins sem fullgiltur var á Íslandi árið 2018. Fram kemur í áætluninni að samningurinn njóti sérstöðu að því leyti að hann aðgreini ofbeldi gegn konum frá öðrum tegundum ofbeldis.Landsáætlunina má nálgast hér fyrir neðan.
Aðgerirnar 25 eru flokkaðar í sjö málaflokka: Skilgreiningar, vernd og stuðning, forvarnir, rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir, samhæfða stefnu og gagnaöflun, efnislegan rétt og eftirfylgni og innleiðingu landsáætlunarinnar.Fram kemur að til að tryggja markvissa framkvæmd og innleiðingu aðgerða landsáætlunarinnar og Istanbúlsamningsins verði skipaður stýrihópur undir forystu dómsmálaráðuneytisins með fulltrúum viðeigandi ábyrgðaraðila. Áætluninni verði fylgt eftir með stafrænu mælaborði sem uppfært verði reglulega um stöðu aðgerða.
Þá muni ráðuneytið verja tíu milljónum árlega, samtals fimmtíu af fjárlögum, sem fari í framkvæmdasjóð landsáætlunar um aðgerðir við kynbundnu ofbeldi gegn konum. Dómsmálaráðuneytið muni auglýsa eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti styrkjum til innleiðinga aðgerða.Þá kemur fram í landsáætluninni að reglur um greiðslur bóta úr ríkissjóði til þolenda verði endurskoðaðar með hagsmuni þolenda kyndbundins ofbeldis að leiðarljósi. Eðlilegt sé að minnka þær kröfur sem gerðar séu til afbrota svo ríkissjóður ábyrgist greiðslu bóta og eru nefndar í landsáætluninni dæmi líkt og brot gegn nálgunarbanni og brottvísun af heimili, umsáturseinelti og hótunarbrot sem gjarnan eigi sér stað í nánu sambandi og beinast í ríkari mæli gegn konum. Slík brot í dag skapi ekki rétt til greiðslu bóta úr ríkissjóði.
Sambærilegar breytingar á vændislöggjöf og í Svíþjóð 2022
Fram kemur í áætlunnini að þrátt fyrir að hin svokallaða sænska leið hafi verið lögfest árið 2009 hafi ekki tekist að uppræta vændi. Vændiskaup varði sektum í framkvæmd nema um ítrekuð brot sé að ræða.„Komi vændiskaupamál til kasta dómstóla hafa dómarar ákveðið á grundvelli laga um meðferð sakamála að þinghald skuli vera lokað. Nafn ákærða er því hvergi birt opinberlega og kaupendur vændis njóta þ.a.l. nafnleyndar. Refsiákvæði 1. og 2. mgr. 206. gr. hegningarlaganna þjóna því illa þeim tilgangi sínum að draga úr eftirspurn eftir vændi. Aðgerðinni er því ætlað að draga frekar úr eftirspurn eftir vændi og vernda þar með konur, einkum þær sem tilheyra jaðarsettum hópum, s.s. konur í neyslu, fyrir ofbeldi.“
Segir að samskonar breyting hafi verið gerð á sænskum hegningarlögum árið 2022 og skilað góðum árangri. Fram hafi komið á Jafnréttisþingi 2025 að sænska leiðin með áorðnum breytingum virðist hafa haft kælandi áhrif á mansal í kynferðislegum tilgangi. Rannsóknir sýni að hlutfall sænskra karla sem keypt hafi vændi sé umtalsvert lægra en í öðrum ríkjum.„Samhliða því að skoðað verður hvort rétt sé að gera breytingar á lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008 til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar verður skoðað hvort gera megi breytingar til að treysta betur réttarstöðu seljenda vændis, einkum m.t.t. mála þar sem seljandi auglýsir vændi.“
Þær gefa áhorfendum jafnframt tækifæri til að sjá fjölbreyttar myndir sem ekki rata alltaf í almennar kvikmyndahúsasýningar. Reykjavík International F...
Uppbygging 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu á Völlunum sem Hafnarfjarðarbær tilkynnti hefur fallið í grýttan jarðveg hjá íbúum í hverfinu. Hrundið he...
Dómsmálaráðherra kynnti í dag áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Hún stefnir á að leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi í nóvember,...
Guðmundur skrifar þetta í færslu á Facebook í kvöld í tilefni af umræðu um brotthvarf ráðherrans fyrrverandi úr ríkisstjórn. Hann leiddi lista Flokks...
Edyta Wyrzykowska átti ekki von á því að koma heim með tæplega þriggja kílóa kóngssvepp þegar hún fór í göngutúr í Heiðmörk. Sveppurinn er 38 sentímet...
Það er ekki óvanalegt að það gangi á ýmsu bak við tjöldin í stjórnmálum. Eðli Flokks fólksins kom hins vegar skýrt fram í skilaboðum sem Guðbjörg Ingu...
„Alþjóðapólitísk áhætta er mikil og horfur í efnahagsmálum á heimsvísu eru óvissar,“ segir í Fjármálastöðugleika, nýjasta riti Seðlabanka Íslands. Þeg...
Vinir Lilju Grétu Norðdahl, þriggja barna móður og eiginkonu á Akranesi, hafa sett af stað söfnun til að gera henni kleift að fara í meðferð á Írlandi...
Leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Villi Neto tekur skýra afstöðu gegn notkun gervigreindar í listsköpun í nýjum þætti Gervigreindarklúbbsins....
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafnar því að hafa þrýst á Guðmund Inga Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, að segja sig frá r...
Jón Áki Jensson geðlæknir tók við af Valgerði Rúnarsdóttur sem framkvæmdastjóri lækninga en hún sagði starfi sínu lausu eftir brotthvarf Ragnheiðar Hu...
Logi Már Einarsson, ráðherra menningarmála, setur hátíðina, sem er sú 23. í röðinni, í kvöld, og Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og tónlistark...
Ríkisútvarpið hefur eftir sínum heimildum að maður á fimmtugsaldri hafi verið með hníf í versluninni. Hann hafi ekki hlýtt skipunum um að leggja hnífi...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra ...
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lögr...
Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að haft hafi verið samband við eigendur bílanna og tréð í kjölfarið fjarlægt. Í öðrum veðurtengd...
Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í d...
Veðurfyrirbæri þetta myndast víða í fjörðum landsins í miklu hvassviðri eins og var í dag. Að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings er um vatnsstr...
Gheorghe Mihai Cacaliceanu, talsmaður Wolt-sendla, segir fund þeirra með forsvarsmönnum fyrirtækisins hafa gengið vel í dag. Fundurinn hófst klukkan 1...
Tré féll í miðborg Reykjavíkur í dag og olli tjóni á tveimur bílum. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að...
Að því er kemur fram á upplýsingasíðu Veðurstofunnar gilda viðvaranirnar ýmist fram á föstudag eða laugardag eftir svæðum. Talsvert hefur rignt víða á...
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að framganga Ingu Sæland í þingsal hafi ekki komið henni á óvart, enda komi henni orðið fát...
Persónuvernd hefur sent frá sér niðurstöður frumkvæðisathugunar á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á bílastæðum fimm innanlands...
Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við því að Guðmundur Ingi Kristinsson, óháður þingm...
Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við því að Guðmundur Ingi Kristinsson, óháður þingm...
Laxveiði gekk talsvert betur í ár en í fyrra, sér í lagi á Vesturlandi. Í stærstu ánni veiddust um þúsund fleiri laxar en síðasta sumar.Laxveiðin gleð...
Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag bar Guðrún undir Ingu nýjustu fregnir af máli Guðmundar Inga Kristinssonar. Guðmundur lét af embætti s...
Lögreglan handtók 17 í tengslum við rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Sex sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til á morg...
Fjölmiðlunum þremur sem Bandaríkjaforseti úthýsti hefur verið hleypt inn í Hvíta húsið á ný. Þeim var vísað frá í morgun þvert á bráðabirgðaúrskurð dó...
Tekjur Isavia lækkuðu á fyrri helmingi ársins og meðal skýringa er fall flugfélagsins Play í fyrra og að rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli ...
Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis. Ný lög um þungunarrof tóku gildi árið 2019 og var með þeim konum heimilt að óska eftir þunguna...
Sveitarfélög vilja takmarka gjaldskrárhækkanir um áramótin til að vinna gegn verðbólgu. Miklar umræður sköpuðust í gærkvöld á landsþingi Sambands ísle...
Það er ekki hlaupið að því fyrir vestræna fréttamenn að komast til Rússlands eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Bæði er það vegna viðskiptaþvingana...
Palestínski aðgerðasinninn Naji B. A. Asar, sem vakti athygli sumarið 2025 fyrir að skvetta rauðri málningu yfir ljósmyndara Morgunblaðsins, í mótmæla...
Boðað hefur verið til mótmæla við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í dag vegna komu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Hann heldur ræðu á a...
A three-year-old girl has died after a drowning incident in the swimming pool of a holiday home in Tinajo, Lanzarote. The incident happened yesterday ...
Norska ríkisútvarpið NRK hefur fengið staðfest frá konungsfjölskyldunni að Wilma, hundur Ástríðar Noregsprinsessu, hafi drepist fáeinum dögum eftir að...
Áfengi er þegar selt á netinu hér á landi. Pawel segir skynsamlegt að setja þeirri starfsemi skýrar reglur sem taki mið af viðskiptafrelsi og áhyggjum...
Þetta staðfestir Anca Elena Cristea, yfirlandvörður í Landmannalaugum, í samtali við fréttastofu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Starfsmaður Vegager...
Íslensk málnefnd kallar eftir vitundarvakningu um mikilvægi þess að samskipti við börn fari í meiri mæli fram á mæltu máli og augliti til auglitis. Þö...
Breskir slúðurmiðlar keppast nú við að greina frá þessu. Davide skaust upp á stjörnuhiminninn árið 2022 þegar hann keppti í bresku raunveruleikaþáttun...