Lögreglan telur að vændi hér á landi sé að mestu drifið áfram af skipulagðri glæpastarfsemi. Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi, og stór hluti þeirra talinn vera fórnarlömb mansals.
Framboð á vændi hefur líklega aldrei verið meira en nú. Vændissíðan City of Love gefur ákveðna mynd af umfanginu, en þar má sjá að Ísland er í áttunda sæti af hundrað sextíu og einu yfir fjölda auglýsinga, og ef miðað er með höfðatölu er Ísland í efsta sæti.
„Við teljum að þetta sé meirihlutinn skipulögð starfsemi, þó þær segist vera hér af fúsum og frjálsum vilja þegar við ræðum við þær, þá grunar okkur að það sé svoleiðis. Ég tel að engin kona væri tilbúin til að selja líkama sinn eins og gert er í þessum bransa,“ segir Gunnar Axel Davíðsson rannsóknarlögreglumaður.
Þetta séu hins vegar flóknar og umfangsmiklar rannsóknir og lögreglu hefur skort bæði mannskap og fjármagn til þess að takast á við málin af fullum þunga.
„Engin skipulögð brotastarfsemi virðir einhver landamæri. Þannig að hvort sem það er vændi eða eitthvað annað, þetta er allt bara þvers og kruss út um allan heim,“ segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir lögreglufulltrúi.
Þá hefur reynst erfitt að fá heimild til rannsókna. Lögreglan óskaði í fyrra eftir heimild frá dómstólum til þess að setja upp hljóð- og myndupptökubúnað í nokkrum íbúðum í fjölbýli í Reykjavík, þar sem grunur lék á að þar færi fram skipulögð vændisstarfsemi og mansal. Þeirri beiðni var hafnað.
„Þetta eru flóknar rannsóknir og þær krefjast þess að við þurfum tæki og tól í þessar rakningar sem við höfum ekki, sem gerir þetta enn þá erfiðara fyrir okkur,“ segir Agnes.
Í Kveik í kvöld er fjallað ítarlega um vændisstarfsemi á Íslandi og fylgst með íbúðum og herbergjum þar sem vændi hefur ítrekað farið fram.