Utanríkisráðherra fer út fyrir valdsvið

„Með öðrum orðum virðist utanríkisráðherra hafa farið gróflega út fyrir sinn stjórnarfarslega verkahring og valdsvið á tilvitnaðri viðræðuvegferð m.a. á vettvangi Evrópusambandsins“
Inngangur
Tveir einstaklingar, þeir Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali, forvígismaður samtakanna Ísland þvert á flokka og Þröstur Jónsson framkvæmdastjóri og óháður sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi öfluðu nýlega lögfræðilegrar álitsgerðar viðvíkjandi þeirri vegferð sem utanríkisráðherra hefur að undanförnu verið á varðandi mögulega aðild Íslands að ESB og þá ekki síst þann undirbúning sem fólginn er í svonefndri þingsályktunartillögu hennar sem liggur fyrir Alþingi til afgreiðslu sbr. þskj. 835; „þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu“. Þingsályktunartillaga þar að lútandi var dreift 6 mars síðastliðinn.
Valdþurrð ráðherra
Í lögfræðiálitinu er komist að þeirri niðurstöðu að undangegnum rækilegum rökstuðningi og forsendureifunum að það heyri ekki undir verksvið utanríkisráðherra né ráðuneytis hennar að hafa forgöngu og þannig marka þjóðaratkvæðagreiðslunni sem boðuð er í ágúst nk. samkvæmt tilvitnaðri þingsályktunartillögu utanríkisráðherra, þann farveg sem málið er í, heldur falli það undir valdsvið forsætisráðuneytis samkvæmt þeim verkskiptingargrundvelli sem gildir um ráðuneyti og ráðherra í ríkisstjórn samkvæmt gildandi forsetaúrskurði sem byggir á 15. gr. stjórnarskrárinnar, svo og lögum um Stjórnarráð Íslands, enda um stjórnskipunarmál íslenska ríkisins að ræða en ekki utanríkismál. Á meðal þess sem fram kemur í lögfræðiálitinu, sem telur um 5 bls, er eftirfarandi:
„Með öðrum orðum virðist utanríkisráðherra hafa farið gróflega út fyrir sinn stjórnarfarslegan verkahring og valdsvið á tilvitnaðri viðræðuvegferð m.a. á vettvangi Evrópusambandsins“
Forsætisráðuneytið getur ekki tekið við keflinu
Í lögfræðiálitinu er enn fremur rökstutt að ekki skipti máli þótt þar til bær ráðherra í umræddu málefni, það er forsætisráðherra, stígi inn í málið núna eða í nálægri framtíð þar sem þess háttar tilburðir haggi ekki þeim framningum og afgerandi farvegi sem utanríkisráðherra markaði málinu, öldungis óvaldbær eða með öðrum orðum utan sinna valdmarka og verkahrings.
„Það haggar því í engu að mati umbj.m. þótt forsætisráðherra mögulega hér og nú eða í nálægri framtíð fari fram með atkvæðameiri og jafnvel afgerandi íhlutun varðandi málefnið, enda vindur slíkt vitanlega hvorki ofan af né rekur til baka þær ákvarðanir og athafnir sem utanríkisráðherra hefur staðið að utan síns valdsviðs og verkahrings.“
Aðrar meintar útafkeyrslur utanríkisráðherra
Landskjörstjórn hefur áður bent á annmarka við spurningar þær sem á að spyrja í þjóðaratkvæðagreiðslunni og gagnrýnt þær.
Þá virðist sem utanríkisráðherra kæri sig kollótta um að brjóta lög og fara út fyrir verksvið sitt því áður hefur verið sent inn lögfræðiálit til Ríkisendurskoðunar vegna framgöngu hennar er varða fjárveitingar til handa gjörspilltum stjórnvöldum í Úkraínu, þar sem dregin er stórlega í efa lögmæti þeirra gjörninga.
Áframhaldið
Að sögn aðstandenda álitsins hefur það einnig verið sent eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Alþingis sem og til samráðsgáttar Alþingis. Ofangreindir aðstandendur furða sig á því að á meðan borgarar landsins þurfa og eiga að fara að landslögum, þá geti utanríkisráðherra farið frjálslega með lög og reglur og jafnvel farið út fyrir valdsvið sitt.
Lögfræðiálitið má lesa í heild sinni hér að neðan.
Umsogn_sbr_þskj_835