Samtök ungra bænda héldu aukaaðalfund í gær, eftir ákall úr grasrót félaganna, til að ræða og marka stefnu samtakanna gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu og þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna 29. ágúst.
Fjarfundur einróma í andstöðu gegn ESB aðild
Fundurinn var fjarfundur enda annir sumarsins í hámarki og sumir sátu fundinn í dráttarvélum þar sem verið var að nýta veðurglugga til heyskapar. Niðurstaðan var skýr. Fundurinn vill að Samtök ungra bænda taki skýra afstöðu gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þar með hafna frekari aðildarviðræðum sem greidd verða atkvæði um í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
Þróun Svía og Finna eftir inngöngu hræði
Steinþór Logi Arnarsson er formaður Samtaka ungra bænda. Hann segir að afstöðu samtakanna skýra, ungir bændur telji framtíð landbúnaðarins með öllum þeim tækifærum sem í honum felist betur borgið utan Evrópusambandsins.
„Kannski nærtækast er auðvitað að við þekkjum til hvernig hefur farið fyrir landbúnaði í Svíþjóð og Finnlandi og hvernig þróunin hefur verið þar síðan þeir gengu inn með lækkun afurðaverðs, minni markaðshlutdeild og þar fram eftir götum þannig að við teljum að íslenskur landbúnaður sé betur borgið utan Evrópusambandsins,“ segir Steinþór.
Andstaða við þjóðaratkvæðagreiðsluna
Þar af leiðandi, segir Steinþór, taki þeir eðlilega skýra afstöðu gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst hvað landbúnaðinn varði. Hann segir að viðræðurnar myndu hafa sjálfkrafa kælandi áhrif á fjárfestingar og kynslóðaskipti í landbúnaði á meðan á þeim standi eða allt fram að eiginlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í ESB.
Aukabúnaðarþing 14. ágúst
Þess má geta að Bændasamtökin hafa boðað til aukabúnaðarþings 14. ágúst þar sem fjallað verður um skýrslu um áhrif aðildar Íslands að ESB á innlendan landbúnað. Fulltrúar Samtaka ungra bænda eiga fulltrúa á þinginu.