Undirskriftasöfnun: Krefjast að Reykjavíkurborg endurskoði og afturkalli úthlutun mosku-lóðarinnar

Undirskriftasöfnun ef hafin á á Ísland.is þar sem þess er krafist að Reykjavíkurborg endurskoði og afturkalli úthlutun lóðarinnar við Suðurlandsbraut 76 sem úthlutað var fyrir byggingu mosku í Reykjavík.
Athafnamaðurinnn Sigfús Aðalsteinsson stendur fyrir undirskriftasöfnunni og hafa 3062 einstaklingar skrifað undir þegar þetta er skrifað. Söfnunin stendur yfir frá 26. maí til 1. júlí 2026.
Borgaryfirvöld endurmeti ráðstöfun lóðarinnar
Í tilkynningu hópsins er bent á að langur tími sé liðinn frá því lóðinni var úthlutað og án þess að framkvæmdir hafi hafist. Þar kemur fram að í mörgum tilvikum séu gerðar kröfur um að framkvæmdir hefjist innan ákveðins frests eftir lóðaúthlutun.
Þeir sem standa að listanum telja því eðlilegt að borgaryfirvöld endurmeti ráðstöfun lóðarinnar með hliðsjón af jafnræði, skipulagsmarkmiðum og hagsmunum borgarbúa.
Borgin tryggi gagnsæi og jafnræði í meðferð lóðaúthlutana.
Í kröfunum er meðal annars lagt upp með að farið verði opinberlega yfir skilmála úthlutunarinnar og upplýst hvort skilyrði um framkvæmdatíma hafi verið uppfyllt.
Jafnframt er lögð áhersla á að borgarlóðir séu nýttar með virkum hætti, að sömu reglur gildi um alla lóðarhafa og að borgin tryggi gagnsæi og jafnræði í meðferð lóðaúthlutana.
Söfnunin er birt á undirskriftavef Ísland.is þar sem almenningi gefst kostur á að lýsa stuðningi við kröfuna.
Helstu atriði
Fréttin hafði samband við Sigfús Aðalsteinsson forsvarsmann undirskriftalistans þar sem vildi hann koma eftirfarandi á framfæri:
- Farið verði yfir skilmála úthlutunarinnar opinberlega
- Upplýst verði hvort skilyrði um framkvæmdatíma hafi verið uppfyllt
- Lóðin verði tekin til baka ef skilmálar hafa ekki verið efndir.