Lögreglu- og hermenn eru víða á götum og breiðstrætum Ankara, nú þegar innan við sólarhringur er þangað til leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í borginni og þrjátíu og tveir þjóðarleiðtogar koma þangað, auk ráðherra utanríkis- og varnarmála.
Fulltrúar fjölmiðla eru velflestir komnir hingað og fyrsti viðburðurinn verður síðdegis, þegar Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO heldur hefðbundinn blaðamannafund, daginn fyrir leiðtogafundinn.
Segja má að viðamiklar árásir Rússa á Kyiv og aðrar borgir í Úkraínu að undanförnu setji tóninn fyrir þennan fund í Ankara. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hefur í kjölfarið hvatt leiðtoga NATO ríkjanna til að efla stuðning sinn, sérstaklega hvað varðar loftvarnakerfi.
Á leiðtogafundinum stendur til að samþykkja yfirlýsingu um tuga milljarða evra hernaðarlegan stuðning við Úkraínu á þessu ári og því næsta; samtals vel á annað hundrað milljarða evra.
Zelensky verður ekki á leiðtogafundinum sjálfum, sem verður á miðvikudagsmorgun, en kemur hingað til Ankara á morgun og hittir leiðtogana þá; óstaðfestar fregnir herma að til standi að hann setjist niður með Donald Trump Bandaríkjaforseta á morgun.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafund NATO. Þorgerður verður á morgun á fundum utanríkis- og varnarmálaráðherra bandalagsins, og Kristrún svo á sjálfum leiðtogafundinum á miðvikudagsmorgun.
Í viðtali við RÚV í gær sagði Þorgerður Katrín að Ísland kæmi með mjög ákveðin skilaboð á þennan fund.
„Við ætlum að halda áfram að gera það sem við gerum vel; að sýna það enn betur að við erum aðilar að bandalaginu sem hægt er að treysta þegar kemur að vörnum, öryggi og eftirliti á Atlantshafinu. Það er líka mikilvægt að við höldum áfram að styðja Úkraínu og það skiptir miklu máli að við höldum áfram að sýna þessa samstöðu; höldum áfram að dýpka samstarfið, líka yfir Atlantshafið, því það er okkur mikilvægt,“ sagði Þorgerður Katrín.