Umhverfisráðherra: „Ég dauðsá eftir þessu molbúalega svari“
Umhverfisráðherra sér eftir „molbúalegu“ svari um tengsl sín við náttúruna, en spyr á móti hvort tengsl manneskjunnar við íslenska náttúru sé ekki allskonar.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- og orkumálaráðherra, segist sjá eftir „molbúalegu“ svari sínu þegar hann var inntur eftir tengingum sínum við náttúruna í þættinum Græna borðið. Það voru gamalkunnu fjölmiðlamennirnir Jón Kaldal og Páll Ásgeir Ásgeirsson sem inntu ráðherrann eftir svörum í þættinum og uppskáru einkennilega, eins og Jóhann Páll hefur nú lýst á Facebook. Jóhann nefndi nánast bakgarðinn heima, eða Laugarásinn, sem er þó óþarfi að gera lítið úr, enda friðlýstur sem náttúruvætti árið 1982. Eins nefndi hann sumarhús afa síns og ömmu á Suðurlandinu, sem einmitt ber sama nafn, eða Laugarás. Ráðherrann segir spurninguna um tengsl við náttúruna hafa komið sér í opna skjöldu.
„Í byrjun viðtalsins var ég spurður um mína helstu náttúruupplifun sem barn. Spurningin setti mig svolítið út af laginu og svarið hefur vakið nokkra kátínu og jafnvel hneykslan á internetinu, enda nefndi ég ekki …