Fóðurblandan hefur síðan í lok mars staðið fyrir umfangsmikilli umbótavinnu í öryggismálum fyrirtækisins eftir að sprenging varð í húsnæði fyrirtækisins. Karlmaður á fertugsaldri lést í sprengingunni, sem er enn til rannsóknar hjá lögreglu og vinnueftirliti.
Verið var að vinna við einn af tómu tönkunum þegar, að því er virðist, ryksprenging varð í tankinum. Stórt gat kom efst á útvegg húsnæðisins nálægt þeim stað þar sem unnið var að viðgerðinni.
Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar, segir að lögð hafi verið sérstök áhersla á að auka öryggisstýringu í starfsemi og framleiðslu fyrirtækisins í samvinnu við starfsfólk og verktaka.
Markvissari öryggisþjálfun starfsfólks
„Samhliða þessu höfum við verið að vinna að bættri verkstýringu verktaka, markvissari öryggisþjálfun starfsfólks og endurskoðun öryggisreglna og merkinga,“ segir Úlfur við mbl.is.
Hann segir að einnig hafi fyrirtækið látið yfirfara allan rafmagnsbúnað í framleiðslubyggingunni sérstaklega umfram hefðbundið og reglubundið eftirlit með honum í samvinnu við sérhæfða rafverktaka og endurskoðað reglur um umgang fólks um starfssvæðið.
„Við höfum jafnframt aukið mannafla við öryggismál og umbótavinnu til að tryggja að nýjar verklagsreglur og aðgerðir verði festar í sessi í daglegum rekstri enda erum við, allt starfsfólk Fóðurblöndunnar og verktakar okkar, staðráðin í að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja eins öruggt vinnuumhverfi og kostur er fyrir alla þá sem koma að starfseminni,“ segir Úlfur.
