Umdeildur transaktívisti væntanlegur á Hinsegin daga – tengdur færslu sem sagði litlar stúlkur „kinky“

Umdeildur transaktívisti væntanlegur á Hinsegin daga – tengdur færslu sem sagði litlar stúlkur „kinky“

Umdeildur transaktívisti væntanlegur á Hinsegin daga – tengdur færslu sem sagði litlar stúlkur „kinky“

Bandaríski transaktívistinn og sviðslistamaðurinn Alok Vaid-Menon, sem kemur fram undir nafninu ALOK, er væntanlegur til Íslands í ágúst og mun koma fram í Tjarnarbíói á meðan Hinsegin dagar standa yfir.

Sýningin fer fram þriðjudaginn 4. ágúst frá klukkan 19 til 22 og er skráð í dagskrá Hinsegin daga sem svokallaður „off-venue“-viðburður.


ALOK er bandarískur grínisti, ljóðskáld, rithöfundur og sviðslistamaður af indverskum uppruna. ALOK skilgreinir sig sem kynsegin og transfeminískan einstakling og notar persónufornöfnin „they/them“ á ensku.

Í kynningu á íslenska viðburðinum segir að ALOK hafi á undanförnum árum hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir sýningar sem blandi saman uppistandi, töluðu máli og persónulegri frásögn. Þar er ALOK lýst sem einni eftirsóttustu rödd samtímauppistands og sviðslistar.

Koma ALOK kann þó að vekja nokkra athygli vegna þeirrar hörðu gagnrýni og þeirra deilna sem fylgt hafa aktívistanum undanfarin ár.

Sagði litlar stúlkur vera „kinky“ og „fráviknar“

Alvarlegasta gagnrýnin á hendur ALOK tengist Facebook-færslu sem birtist árið 2016 undir nafninu DarkMatter.

DarkMatter var sameiginlegt sviðslista- og aktívistaverkefni ALOK og Janani Balasubramanian, en þau kynntust við Stanford-háskóla og komu saman fram með ljóð, fyrirlestra og pólitíska gjörninga á árunum 2013 til 2017.

Færslan var birt í tengslum við harðar deilur um lög í Norður-Karólínu sem kváðu á um að salerni og búningsaðstaða opinberra stofnana skyldu áfram aðgreind eftir líffræðilegu kyni.

ALOK skilgreinir sig sem kynsegin og transfeminískan einstakling og notar persónufornöfnin „they/them“ á ensku.

Í textanum var gagnrýnd sú frásögn að takmarkanir á aðgangi trans fólks að kvennasalernum væru nauðsynlegar til að vernda ungar stúlkur. Þar sagði meðal annars:

„Nú á dögum er frásögnin sú að skrítið trans fólk, eða ‘klæðskiptingar’ eins og þau eru kölluð, komi inn á salernin ykkar og misnoti saklausar litlar stúlkur.“

Því næst sagði að hugmyndin um „hreinleika“ meintra fórnarlamba hefði lítið breyst og að samfélagið framleiddi ímynd hinna fullkomlega saklausu fórnarlamba. Um ungar stúlkur sagði síðan:

„Það eru engin ævintýri og engar prinsessur hér. Litlar stúlkur eru líka hinsegin, trans, kinky, fráviknar, góðar, vondar, fallegar, ljótar, stórkostlegar og sérkennilegar. Börnin ykkar eru ekki eins gagnkynhneigð og hefðbundin og þið haldið.“

Orðið „kinky“ hefur kynferðislega merkingu á ensku og er meðal annars notað yfir óhefðbundnar kynferðislegar langanir eða hegðun. Það var einkum þetta orðalag sem vakti hneykslan þegar skjáskot af færslunni fóru síðar í mikla dreifingu.

Gagnrýnendur sögðu textann kynferðisvæða börn og gera lítið úr þeim áhyggjum foreldra að fullorðnir karlmenn gætu fengið aðgang að salernum og búningsaðstöðu ungra stúlkna á grundvelli yfirlýstrar kynvitundar.

 

Facebook færslan umdeilda sem ALOK sagði síðar að vinkona sín hefði skrifað.

The Exorcist sögð fjalla um stúlku að kanna kynhneigð sína

Í sömu færslu var einnig fjallað um hryllingsmyndina The Exorcist frá árinu 1973.

Myndin fjallar um tólf ára stúlku sem virðist vera haldin illum anda. Í DarkMatter-færslunni var myndin hins vegar túlkuð frá því sjónarhorni að stúlkan væri í raun að kanna kynhneigð sína.

„Frá öðru sjónarhorni er litla stúlkan í raun að kanna kynhneigð sína – sjálfsfróun og svo framvegis – og sína eigin djöfla eða grimmd.“

Síðar í færslunni var þeirri hugmynd velt upp hvort samfélagið ætti að hverfa frá þeirri ímynd að litlar stúlkur væru fullkomlega saklausar og viðurkenna þess í stað að allir gætu bæði orðið fyrir og beitt ofbeldi, þar á meðal ungar stúlkur.

„Enginn er algóður eða alvondur,“ sagði í niðurlagi færslunnar. „Lítið í kringum ykkur: Það eru engar prinsessur.“

Þessi umfjöllun jók enn á gagnrýnina og töldu margir textann óhugnanlegan, sérstaklega í ljósi þess að hann var settur fram sem andsvar við áhyggjum af öryggi barna á salernum.

Notendur útilokaðir frá Twitter fyrir að gagnrýna textann

Tilvitnanir úr færslunni fóru fyrst að vekja verulega athygli á Twitter árið 2021. Fjöldi notenda brást ókvæða við orðalaginu, en sumir þeirra voru á endanum útilokaðir frá miðlinum eftir að hafa birt skjáskot af textanum til að gagnrýna hann.

Þeirra á meðal var Lauren Witzke, íhaldssamur álitsgjafi og fyrrverandi frambjóðandi Repúblikanaflokksins til öldungadeildar Bandaríkjaþings.

Witzke endurbirti mynd þar sem umrædd orð voru eignuð ALOK og skrifaði að þau væru „djöfulleg“.

Twitter lokaði reikningi Witzke í mars 2021. Í tilkynningu sem hún birti síðar sagði að færslan hefði brotið gegn reglum miðilsins um hatursfulla háttsemi. Witzke hélt því sjálf fram að henni hefði verið refsað fyrir að gagnrýna kynferðisvæðingu barna.

Hún fékk aðgang að Twitter á ný tæpum tveimur árum síðar, eftir að Elon Musk hafði keypt fyrirtækið og boðað almenna sakaruppgjöf fyrir marga reikninga sem áður höfðu verið útilokaðir.

„Ég er komin aftur, þökk sé vinsamlegri yfirtöku Elons Musk, eftir að hafa verið bönnuð í næstum tvö ár,“ skrifaði Witzke í janúar 2023.

Hún birti þá aftur myndina sem hún sagði hafa leitt til lokunar reikningsins og hvatti fólk til að meta hvort fyrri stjórnendur Twitter hefðu gengið of langt.

ALOK segir samstarfskonuna hafa skrifað færsluna

Færslan birtist sem fyrr segir undir nafninu DarkMatter og var um árabil eignuð ALOK án þess að því væri mótmælt með áberandi hætti. Hún var síðan fjarlægð af Facebook, en skjáskot af henni héldu áfram að ganga manna á milli.

Eftir að gagnrýni tók að magnast á færsluna hélt ALOK því fram að textinn hefði aldrei verið skrifuð af honum.

Hann setti upp sérstaka staðreyndavakt (e. fact-check)  á vef sínum þar sem hann fullyrðir að færslan hafi verið skrifuð af fyrrverandi samstarfskonu sinni Janani Balasubramanian. ALOK segir að orð textans, hugmyndirnar og lífsreynslan sem þar sé lýst séu ekki sín.

Ekki verður ráðið af upphaflega skjáskotinu hvor meðlimur DarkMatter skrifaði færsluna. Hún birtist án einstaklingsbundinnar undirritunar undir sameiginlegu nafni verkefnis sem þau ALOK og Balasubramanian stóðu bæði að.

ALOK segir gagnrýnendur hafa hunsað skýringuna til að geta áfram dregið upp mynd af transfeminísku fólki sem hættulegu konum og börnum. Gagnrýnendur benda á móti á að færslan hafi birst á opinberum vettvangi sameiginlegs verkefnis ALOK og að skýringin um samstarfskonuna hafi ekki komið fram fyrr en löngu eftir birtingu hennar.

Deilan blossaði aftur upp vegna UGG

Málið vaknaði aftur til lífsins árið 2024 þegar skó- og tískufyrirtækið UGG hóf samstarf við ALOK vegna Pride-mánaðarins.

ALOK hannaði meðal annars takmarkaða útgáfu af flík fyrir fyrirtækið og kom fram í kynningarherferð þess. Markmiðið var sagt vera að fagna hinsegin líkama og hvetja fólk til að klæða sig í samræmi við eigin sjálfsmynd.

Íhaldssamir álitsgjafar brugðust hart við samstarfinu og hvöttu til sniðgöngu á UGG. Deilan var af sumum borin saman við þá miklu sniðgöngu sem Bud Light varð fyrir eftir auglýsingasamstarf fyrirtækisins við trans áhrifavaldinn Dylan Mulvaney.

DarkMatter-færslan fór aftur í mikla dreifingu í tengslum við UGG-herferðina.

Eftir að facebook færsla ALOK um „kinky“ litlar stelpur vakti athygli sagði hann að vinkona sín hefði skrifað textann.

Forsíða brúðartímarits vakti hörð viðbrögð

ALOK komst einnig í fréttir árið 2023 eftir að birtast á stafrænni forsíðu indverska brúðartímaritsins Brides Today India, klætt hefðbundnum indverskum kvenfatnaði og skartgripum.

Forsíðan vakti hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum og fór færsla með myndunum í milljónadreifingu. Sumir gagnrýnendur töldu forsíðuna móðgandi í garð kvenna, á meðan stuðningsmenn fögnuðu henni sem tákni um aukið rými fyrir kynsegin fólk.

Í viðtalinu sagði ALOK meðal annars að ást bryti niður tvíhyggju á borð við „karl og konu“ og lýsti áframhaldandi synjun Indlands á lagalegri viðurkenningu hjónabands samkynhneigðra sem stofnanabundinni mismunun.

ALOK sagði jafnframt að ást snerist um frelsi fremur en hömlur og að ekki ætti að setja sambandsform fólks í virðingarstigveldi.

Kvenréttindafrömuður sagði birtinguna „hættulega“

Vaishnavi Sundar, indversk kvikmyndagerðarkona og kvenréttindafrömuður, var meðal þeirra sem gagnrýndu forsíðuna harðlega.

Sundar sagði indverskar konur enn búa við alvarlegt kynbundið ofbeldi, fátækt, skort á hreinlætisaðstöðu og takmarkaðan aðgang að menntun og réttarkerfinu. Þá benti hún á heiðursmorð, dauðsföll vegna deilna um heimanmund og kynbundin morð á nýfæddum stúlkubörnum.

Hún sagði það sýna mikið oflæti að einstaklingur sem hún skilgreindi sem forréttindakarl gæti kallað sig brúði á meðan indverskar konur byggju við slíkan veruleika.

„Að flytja inn kynvitundarhugmyndafræði sem einhvers konar framsækinn aðgöngumiða að frelsi er ekki aðeins ógeðslegt heldur hættulegt,“ sagði Sundar í samtali við Reduxx.

Að hennar mati gæti áhersla á kynvitund skyggt á þá alvarlegu mismunun og það ofbeldi sem konur á Indlandi sæta vegna kyns síns.

Gagnrýndur fyrir að afkynja tungumál um kvenréttindi

ALOK hefur talað fyrir því að tíska og fegurðariðnaðurinn verði að fullu leystur undan kynjaflokkun. Þá hefur ALOK talað fyrir kynhlutlausara orðalagi þegar fjallað er um meðgöngu, fóstureyðingar, tíðablæðingar og kynbundið ofbeldi.

ALOK hefur meðal annars gagnrýnt hugtakið „kvenréttindi“ fyrir að vera ekki nægilega opið gagnvart trans og kynsegin fólki.

Þessar hugmyndir hafa sætt gagnrýni frá kvenréttindasinnum sem telja að með þeim sé dregið úr möguleikum kvenna til að tala skýrt um mismunun, ofbeldi og líkamlega reynslu sem tengist kvenkyni.

Stuðningsmenn ALOK segja kynhlutlaust orðalag hins vegar nauðsynlegt til að útiloka ekki trans karla og kynsegin fólk sem geti orðið barnshafandi, haft tíðablæðingar eða þurft á fóstureyðingu að halda.

ALOK hefur einnig gagnrýnt tvískiptingu kynjanna og tengt hefðbundnar hugmyndir um kyn meðal annars við nýlendustefnu, kynþáttahyggju og félagslegt vald. Gagnrýnendur segja slíkan málflutning rugla saman líffræðilegu kyni annars vegar og kynhlutverkum eða sjálfsmynd hins vegar.

Íslenskir áhorfendur fá tækifæri til að kynna sér list og málflutning ALOK í Tjarnarbíói þann 4. ágúst. Miðað við þær deilur sem hafa fylgt aktívistanum erlendis má þó ætla að koma ALOK til landsins verði ekki með öllu óumdeild.


#daga #hinsegin #transaktívisti #umdeildur #væntanlegur


Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/umdeildur-transaktivisti-vaentanlegur-a-hinsegin-daga-tengdur-faerslu-sem-sagdi-litlar-stulkur-kinky/

📰 Aðrar fréttir

Óhugguleg aðkoma eftir innbrot á heimili fjölskyldu á Kársnesi – Finnur fyrir mikilli samstöðu meðal íbúa
📅 24.07.2026 👁️ 0
Óhugguleg aðkoma eftir innbrot á heimili fjölskyldu á Kársnesi – Finnur fyrir mikilli samstöðu meðal íbúa
„Það var brotist inn á heimili okkar á meðan við vorum burtu í nokkra daga. Aðkoman var vægast sagt óhugguleg,“ segir kona sem býr með fjölskyldu sinn...
ICC top prosecutor removed over sexual misconduct allegations
📅 24.07.2026 👁️ 0
ICC top prosecutor removed over sexual misconduct allegations
Karim Khan denies allegations of engaging in an improper sexual relationship with a junior ICC staff member and seeking to stop her pursuing her compl...
Herjólfur klár fyrir Þjóðhátíð
📅 24.07.2026 👁️ 0
Herjólfur klár fyrir Þjóðhátíð
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja segir það mikið gleðiefni að búið sé að klára viðgerðina á Herjólfi og að hann sé aftur kominn á fullt sk...
County Monaghan bomb: Law student charged over device in car
📅 24.07.2026 👁️ 0
County Monaghan bomb: Law student charged over device in car
An Irish court is told the accused, Isobella Perrie Sullivan, is studying to become a barrister.
Óttast að „bottar“ muni ýta undir á­greining í að­draganda at­kvæða­greiðslu - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Óttast að „bottar“ muni ýta undir á­greining í að­draganda at­kvæða­greiðslu - Vísir
Í maí vöktu svokallaðir „Viðreisnarbottar“ nokkra athygli en það virðist vera hjörð netþjarka sem birtist í ummælakerfi undir Facebook-færslu forstjór...
Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir fíkniefnaflutning
📅 24.07.2026 👁️ 0
Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir fíkniefnaflutning
Skipverji sem er ákærður í Dettifossmálinu svokallaða segir að hann og samverkamaður hans hafi átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir þátttöku í umfangsm...
Ís­lensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Ís­lensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni - Vísir
Í sumar hefur hitabylgja gert íbúum á meginlandi Evrópu lífið leitt. Þó að dregið hafi úr hitabylgjunni hefur önnur vá tekið við í sunnanverðri álfunn...
Trump vows to investigate EU over fining of US tech companies
📅 24.07.2026 👁️ 0
Trump vows to investigate EU over fining of US tech companies
The US president says fines against Google, as well as Apple, Meta and Amazon, should be "entirely reversed."
Fimm á sjúkrahúsi eftir árekstur á Grindavíkurvegi
📅 24.07.2026 👁️ 0
Fimm á sjúkrahúsi eftir árekstur á Grindavíkurvegi
Bílslys varð á Grindavíkurvegi síðdegis og fimm fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þetta segir Gunnar Jón Ólafsson, bakvaktsstj...
Við þekkjum hana sem Oprah en það er ekki hennar rétta nafn
📅 24.07.2026 👁️ 1
Við þekkjum hana sem Oprah en það er ekki hennar rétta nafn
Fyrrum spjallþáttadrottningin með miklu meira Oprah Winfrey hefur verið þekkt nafn í áratugi, en gælunafnið sem við þekkjum hana undir er ekki raunver...
Þjófnaður á Kársnesi: Tók kyrfilega festan gaskút af fellihýsi
📅 24.07.2026 👁️ 1
Þjófnaður á Kársnesi: Tók kyrfilega festan gaskút af fellihýsi
Ívar Axelsson, íbúi í Melgerði á Kársnesi í Kópavopi, birti á Facebook mynd úr eftirlitsmyndavél Telslu hans sem sýnir mann fara burt með gaskút. Atvi...
Cyclospora outbreak expands to nine US states, health officials say
📅 24.07.2026 👁️ 0
Cyclospora outbreak expands to nine US states, health officials say
Federal investigators continue to search for the sources amid the largest number of reported cyclosporiasis cases in US history.
Báti var siglt yfir kajakræðara - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Báti var siglt yfir kajakræðara - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá lögreglu um verkefni dagsins. Einn sé vistaður í fangageymslu.  Einnig hafði lögregla afskipti af...
Langar bið­raðir á Kefla­víkur­flug­velli óásættanlegar - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Langar bið­raðir á Kefla­víkur­flug­velli óásættanlegar - Vísir
Við ræðum einnig við sendiherra Íslands í Madrid en spænsk-íslensk hjón þurftu að flýja heimili sitt vegna skógarelda. Eldarnir hafa valdið miklu tjón...
„Ég hef aldrei lent í öðru eins“ - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
„Ég hef aldrei lent í öðru eins“ - Vísir
Fríða, sem var á ferð ásamt eiginmanni og tíu mánaða barni þeirra, segir fyrsta flöskuhálsinn hafa beðið þeirra þar sem farið er niður rúllustigann, a...
Man tells of attempt to save drowning girl and mum at West Mersea
📅 24.07.2026 👁️ 1
Man tells of attempt to save drowning girl and mum at West Mersea
Craig Bowe says he heard screams during a trip to a beach to celebrate his daughter's birthday.
Héldu velli þrátt fyrir miklar áskoranir og breytingar
📅 24.07.2026 👁️ 1
Héldu velli þrátt fyrir miklar áskoranir og breytingar
Finnskir bændur stóðu frammi fyrir meiriháttar breytingum á rekstrarumhverfi og búskaparháttum þegar Finnland varð aðili að Evrópusambandinu 1995. En ...
Fimm fluttir til að­hlynningar eftir á­rekstur - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Fimm fluttir til að­hlynningar eftir á­rekstur - Vísir
Að sögn Gunnars Jóns Ólafssonar, bakvaktsstjórnanda hjá Brunavörnum Suðurnesja, er slysið talið alvarlegt en bílarnir skullu saman úr gagnstæðri átt á...
Auka ítök sín á hernumdum svæðum eftir að sex fórust í átökum
📅 24.07.2026 👁️ 1
Auka ítök sín á hernumdum svæðum eftir að sex fórust í átökum
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað byggingu tveggja nýrra útvarða fyrir landtökubyggðir á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum...
Bon Jovi þurfti að stöðva tónleika vegna heilsunnar – Aðdáendur óttaslegnir um framhaldið - Sjáðu myndbandið
📅 24.07.2026 👁️ 1
Bon Jovi þurfti að stöðva tónleika vegna heilsunnar – Aðdáendur óttaslegnir um framhaldið - Sjáðu myndbandið
Rokkstjarnan Jon Bon Jovi þurfti óvænt að stöðva tónleika í Madison Square Garden í New York í gærkvöldi. Aðdáendur hafa áhyggjur af heilsu hans.
Hörð hægristefna klýfur stærsta flokk Póllands
📅 24.07.2026 👁️ 0
Hörð hægristefna klýfur stærsta flokk Póllands
Hörð hægristefna klýfur stærsta flokk Póllands Flokk­ur­inn Lög og rétt­læti, sem var við völd í Pól­land í átta ár, er í miðj­um klíð­um að klofna ef...
Egill mjög efins um tímasetninguna: „Pólitísk umræða er eiginlega orðin að tómu rugli og illindum“
📅 24.07.2026 👁️ 1
Egill mjög efins um tímasetninguna: „Pólitísk umræða er eiginlega orðin að tómu rugli og illindum“
„Ég hef verið mjög efins um að það sé góð hugmynd að efna til atkvæðagreiðslu um ESB á þessum tíma glundroða í veröldinni og heiftarlegrar pólaríserin...
PlayStation Network down, leaving thousands unable to play digital games
📅 24.07.2026 👁️ 0
PlayStation Network down, leaving thousands unable to play digital games
Sony's status page read that it was "working to resolve the issue as soon as possible".
Heatwave reveals lost archaeological sites across Wales
📅 24.07.2026 👁️ 1
Heatwave reveals lost archaeological sites across Wales
The Royal Commission of Wales said some of these known sites have not been seen clearly in decades.
Vilja allt fyrir kaffistofuna gera en gengur ekki mikið lengur
📅 24.07.2026 👁️ 1
Vilja allt fyrir kaffistofuna gera en gengur ekki mikið lengur
Kaffistofa Samhjálpar fær að vera áfram í húsnæði Fíladelfíusafnaðarins út ágúst. Helgi Guðnason prestur segir að tími sé kominn til að borgin finni v...
70-year-old man in serious condition after near drowning at Los Cristianos Beach
📅 24.07.2026 👁️ 1
70-year-old man in serious condition after near drowning at Los Cristianos Beach
A 70-year-old man has been taken to hospital in a serious condition after being rescued from the sea at Los Cristianos beach in the south of Tenerife ...
Skip­verjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Skip­verjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus - Vísir
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Landsréttar yfir skipverjanum, sem kveðinn var upp þann 9. júlí síðastliðinn. Hann hefur þegar verið ákærður...
Karl og kona handtekin á Írlandi með „háþróaða“ sprengju
📅 24.07.2026 👁️ 1
Karl og kona handtekin á Írlandi með „háþróaða“ sprengju
Karl og kona hafa verið handtekin á Írlandi eftir að „háþróuð“ sprengja fannst í bíl þeirra. Hún fannst í rassíu írsku lögreglunnar sem beindist gegn ...
Shipping Goods to and from the Canary Islands
📅 24.07.2026 👁️ 1
Shipping Goods to and from the Canary Islands
The Canary Islands are home to one of Europe’s most international communities, with large British and German contingents living alongside residents fr...
Endur­koma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Endur­koma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar - Vísir
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Eyjum, fagnar því að Herjólfur sé kominn aftur í reglulegar siglingar og á fullu skriði eftir viðgerð sem tekið hefu...
LeBron James to join Philadelphia 76ers after Los Angeles Lakers exit
📅 24.07.2026 👁️ 1
LeBron James to join Philadelphia 76ers after Los Angeles Lakers exit
Basketball superstar LeBron James announces he will join the Philadelphia 76ers for what he says will be his final contract in the NBA.
Met Police officers hurt after boat strikes Westminster Bridge
📅 24.07.2026 👁️ 1
Met Police officers hurt after boat strikes Westminster Bridge
Police say a number of officers entered the water but were recovered following the crash.
Hallgrímur segir fund á háaloftinu dæmisögu um íslensku krónuna
📅 24.07.2026 👁️ 1
Hallgrímur segir fund á háaloftinu dæmisögu um íslensku krónuna
Hallgrímur H. Helgason leikritaþýðandi segir hlut sem eiginkona hans fann við tiltekt á háaloftinu vera dæmisögu um stöðu íslensku krónunnar.Segir han...
Íslenskur karlmaður gerði vel við sig á Benidorm - Lögreglan bauð honum „sérstakan pakka með gistingu innifalinni“
📅 24.07.2026 👁️ 1
Íslenskur karlmaður gerði vel við sig á Benidorm - Lögreglan bauð honum „sérstakan pakka með gistingu innifalinni“
Fimmtugur íslenskur karlmaður hefur verið handtekinn í Benidorm á Spáni. Vísir greinir frá og hefur eftir spænskum miðli.
Krefjast þess að réttindi heilbrigðisstarfsfólks séu virt í rannsóknum á alvarlegum atvikum
📅 24.07.2026 👁️ 1
Krefjast þess að réttindi heilbrigðisstarfsfólks séu virt í rannsóknum á alvarlegum atvikum
Sjúkraliðafélag Íslands lýsir yfir skýrum stuðningi við starfsmann á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sem var handtekinn vegna andláts k...
Kona ákærð fyrir kókaínsmygl á Keflavíkurflugvelli
📅 24.07.2026 👁️ 1
Kona ákærð fyrir kókaínsmygl á Keflavíkurflugvelli
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur konu sem handtekin var á Keflavíkurflugvelli í maí fyrir að reyna að smygla rúmum 18 kílóum af kókaíni ...
Ný innkeyrsla á að auðvelda aðkomu að Keflavíkurflugvelli
📅 24.07.2026 👁️ 1
Ný innkeyrsla á að auðvelda aðkomu að Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur opnað nýja innkeyrslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli sem ætlað er að bæta aðkomu. Miklum framkvæmdum sem hafa staðið yfir á bílast...
Diddy í ein­angrun eftir slags­mál við sam­fanga - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Diddy í ein­angrun eftir slags­mál við sam­fanga - Vísir
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá tíðindunum af Combs sem afplánar nú fimmtíu mánaða dóm fyrir að hafa staðið að flutningum fólks fyrir vændisstarfse...
Líf og fjör á bæjar- og tónlistarhátíðum um helgina
📅 24.07.2026 👁️ 2
Líf og fjör á bæjar- og tónlistarhátíðum um helgina
Útileguþyrstir landsmenn ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi um allt land um helgina. Í Reykholti í Borgarfirði verður klassísk tónlistarhá...
Útför Bonnie Tyler verður sýnd í beinu streymi
📅 24.07.2026 👁️ 2
Útför Bonnie Tyler verður sýnd í beinu streymi
Aðdáendur um allan heim munu geta horft á útför velsku söngkonunnar Bonnie Tyler í netútsendingu.Tyler lést þann 8. júlí, 75 ára að aldri, á sjúkrahús...
Sveinn Andri Sveinsson: „Troddu þessum helvítis tjakki upp í rassgatið á þér“
📅 24.07.2026 👁️ 2
Sveinn Andri Sveinsson: „Troddu þessum helvítis tjakki upp í rassgatið á þér“
Neikvæðnin og bölmóðurinn í nei-sinnum minnir helst á manninn sem fór upp að bóndabæ til að fá lánaðan tjakk vegna þess að það var sprungið hjá honum ...
Vilja refsi­að­gerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kín­verja - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 2
Vilja refsi­að­gerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kín­verja - Vísir
Hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Repúblikanar samþykktu á þingi í fyrra innihélt um 170 milljóna dala fjárveitingu til eftirlits með ólögle...
Lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum dapurlegt en „kemur ekki á óvart“
📅 24.07.2026 👁️ 2
Lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum dapurlegt en „kemur ekki á óvart“
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mjög alvarlegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu ...
Standa með fé­lags­manni sem var sviptur frelsi - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 2
Standa með fé­lags­manni sem var sviptur frelsi - Vísir
„Málið er afar alvarlegt. Félagsmaður okkar var sviptur frelsi, fékk réttarstöðu sakbornings og bjó um tíma við grun um aðild að einu alvarlegasta bro...
Það er ekki bara Harry - Samband konungs og Vilhjálms einnig stirt: „Heldur að hann viti best“
📅 24.07.2026 👁️ 2
Það er ekki bara Harry - Samband konungs og Vilhjálms einnig stirt: „Heldur að hann viti best“
Það er ekki bara Harry prins sem á í erfiðu sambandi við fjölskyldu sína. Karl konungur og Vilhjálmur prins eiga heldur ekki sérstaklega hlýtt samband...
Faisal Islam: The UK's Trump trade deal no longer looks world-beating
📅 24.07.2026 👁️ 1
Faisal Islam: The UK's Trump trade deal no longer looks world-beating
While the US tariffs imposed on the UK are effectively unchanged, other countries now have a better deal.
Nína Richter skrifar: Leyfi til að vera léleg
📅 24.07.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Leyfi til að vera léleg
Mynd Hvað eru börnin þín að æfa?
100% öruggt að kjarasamningar verði endurskoðaðir í haust
📅 24.07.2026 👁️ 2
100% öruggt að kjarasamningar verði endurskoðaðir í haust
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir þörf á samtali og samstöðu atvinnulífs og launþega í ljósi nýjustu verðbólgumælinga....
20kg of heroin seized at Gran Canaria hotel
📅 24.07.2026 👁️ 2
20kg of heroin seized at Gran Canaria hotel
Four people have been arrested after police seized 20 kilograms of heroin from a hotel in Las Palmas de Gran Canaria, in what is believed to be one of...
Svíþjóð í hættu á refsingu frá ESB
📅 24.07.2026 👁️ 1
Svíþjóð í hættu á refsingu frá ESB
Svíþjóð í hættu á refsingu frá ESB Fréttin24. júlí 2026Erlent, Evrópusambandið, OrkumálLeave a Comment Ebba Busch orkumálaráðherra Svíþjóðar. Framkvæm...