Úkraínski herinn gerði drónaárás á hráolíu- og jarðgasvinnslustöð í norður Síberíu í gær. Héraðsstjóri Yamal-Nenets héraðs, Dmitry Artyukhov, segir að dróninn hafi verið skotinn niður en eldur hafi kviknað þegar brakið féll á verksmiðjuna.
Þetta er í fyrsta sinn sem úkraínski herinn gerir árás á héraðið. Þetta er sögð langdrægasta drónaárás sem herinn hefur gert en vinnslustöðin er í um 3.200 km fjarlægð frá landamærum Úkraínu.