Úkraínsk kona, sem er grunuð um sprengjuárás gegn samlanda sínum, auðkýfingnum Vadym Yermolaiev, í síðasta mánuði, er látin. Tveir menn hafa verið handteknir, grunaðir um að ráða henni bana.
Í lok júní gaf Interpol út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Anastasiiu Berezovsku, 39 ára úkraínskri konu. Hún var talin hafa flúið Mónakó eftir að hafa komið sprengju fyrir í anddyri fjölbýlishúss með þeim afleiðingum að úkraínskur auðkýfingur og fjölskylda hans særðust.
Dulbjó sig sem karlmann
Samkvæmt aðstoðarsaksóknara í Mónakó fylgdist Berezovska með íbúðarhúsinu í aðdraganda árásarinnar og dulbjó sig sem karlmann þegar hún kom sprengjunni fyrir í síðustu viku.
Þá á hún að hafa snúið aftur til Úkraínu tveimur dögum síðar, þar sem hún hafði samband við fjölskyldu sína og tvo menn, fyrrverandi lögreglumann og starfandi yfirmann hjá leyniþjónustu varnarmálaráðuneytis Úkraínu.
Leyniþjónustumaðurinn hefur játað að hafa myrt Berezovsku ásamt hinum manninum. Þeir hafa báðir verið handteknir, grunaðir um morð af ásettu ráði. Samkvæmt úkraínsku öryggisþjónustunni SBU fannst Berezovska látin með skotsár á höfði. Rannsakendur telja henni hafa verið haldið nauðugri í kjallara sem líkist pyntingarklefa í íbúðarhúsnæði í Kyiv áður en hún var myrt.
Yfirvöld í Mónakó og Úkraínu vinna saman að áframhaldandi rannsókn á sprengjuárásinni og að því að bera kennsl á fleiri sem kunna að hafa komið að henni. Þá rannsakar úkraínska öryggisþjónustan morðið á Berezovsku.