Úkraínumenn hafa hingað til reitt sig á dróna til að gera árásir á skotmörk í Rússlandi. Þeir gerðu til að mynda eina umfangsmestu árás sína hingað til í gær, þar sem rússnesk yfirvöld sögðust hafa skotið niður 1.478 dróna.
Þeir hafa einnig notast við heimagerðar stýriflaugar, sem Úkraínumenn hófu að framleiða í fyrra
Rússum myndi hins vegar reynast erfiðara að varna skotflaugaárásum, en dróna- og stýriflaugaárásum, og í samtali við CBS News sagði Fedorov mikilvægt að Úkraínumenn nýttu alla mögulega tækni í baráttu sinni við Rússa.
Sjá einnig: Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa
Drónar og stýriflaugar fljúga tiltölulega lágt með jörðu á leið til skotmarka sinna og er hægt að granda þeim með ýmsum leiðum. Skotflaugar fljúga hins vegar hátt til himins eða upp í gufuhvolfið og falla til jarðar á gífurlegum hraða, þar sem þær lenda á skotmörkum sínum.
Fedorov sagði Úkraínumenn hafa verið duglega við nýsköpun en varaði jafnframt við því að Rússar væru einnig að taka framförum.
Ráðherrann fyrrverandi leiddi drónabyltingu Úkraínu og gríðarleg mótmæli brutust út fyrr í sumar þegar hann var látinn fara í pólitískum hrókeringum.
Fjórir létust og að minnsta kosti fjórtán særðust í árásum Rússa í gær. Meðal skotmarka var stálvinnsla í Kryvyi Rih, heimabæ Vólódimírs Selenskís forseta. Þá gerðu Rússar árás á vinsælan útibókamarkað í Pochaina.