Karl og kona frá Póllandi voru í gær dæmd til fangelsisvistar fyrir tilraun til að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins. Smyglið uppgötvaðist þegar fólkið kom til Keflavíkurflugvallar frá Katowice í Póllandi. Bæði voru þau með efnin falin inni á sér.
Karlmaðurinn fékk átta mánaða fangelsisdóm og konan sex mánuði.
Fólkið átti efnin ekki heldur tók að sér að smygla þeim gegn greiðslu.