Reykjavíkurborg hefur ekki ráðið upplýsingafulltrúa eftir uppsagnir í júní. Hins vegar hefur verið samið við tvo starfsmenn úr fyrra samskiptateymi um að starfa fram að uppsagnarfresti um áramótin.
Þetta kemur fram í svari Hildar Björnsdóttur borgarstjóra við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar sem var lagt fram á borgarráðsfundi í dag.
Í júní var upplýsingafulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði, velferðarsviði og skóla- og frístundasviði sagt upp auk fleiri starfsmanna. Alls voru 18 störf lögð niður og níu færð til á milli sviða.
Í svarinu segir að borgarstjóri hafi með aðstoð starfsfólks skrifstofu borgarstjóra haldið utan um upplýsingamál á meðan unnið sé að nýju fyrirkomulagi sem verður kynnt á næstu vikum. Ekki hafi verið keypt þjónusta eða verkefnum útvistað eftir uppsagnirnar.
„Samið hefur verið við tvo starfsmenn úr fyrra samskiptateymi að starfa til áramóta fram að uppsagnarfresti og eru þau sviðum innan handar við miðlun. Við munum á næstu misserum kynna nýtt og skilvirkara fyrirkomulag,“ segir í svari borgarstjóra.