Varnarmálaráðuneyti Rúmeníu segir tvo hafa særst lítillega eftir að rússneskur dróni skall í nótt á þaki íbúðahúss í hafnarborginni Galati, nærri landamærunum að Úkraínu. Rúmenía er aðili að Atlantshafsbandalaginu.
Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að einn þeirra dróna sem Rússlandsher beiti gegn borgaralegum skotmörkum í Úkraínu hafi villst yfir landamærin með þessum afleiðingum.
Ratsjár hafi fylgst með ferðum flygildisins uns það skall á húsinu og kveikti þar eld sem hafi fljótlega verið slökktur. Tvær F-16 orrustuþotur voru sendar á loft eftir að dróninn fór inn fyrir lofthelgi Rúmeníu.
Þetta var í fyrsta sinn sem rússneskur dróni hæfði íbúðarhús í Rúmeníu frá upphafi innrásarstríðsins þótt þeir hafi tugum skipta farið inn fyrir lofthelgina. Loftvarnarflautur ómuðu um alla Úkraínu í nótt og fram undir morgun vegna yfirvofandi loftárása Rússa.
Rússneski landstjórinn í Donetsk segir minnst þrjá hafa verið drepna í drónaárás Úkraínuhers í nótt og nokkra til viðbótar særst. Drónum var einnig beint að rússneska héraðinu Volgogrod án þess að nokkurn sakaði.