Tveir hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn frönsku lögreglunnar á upptökum mikilla skógarelda í Fontainebleau-skógi. Hann er í um sextíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni París.
Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands segir að nokkrir eldar hafi kviknað í skóginum á einum og sama ferkílómetranum. Það geti bent til þess að um íkveikju hafi verið að ræða.
Annar hinna handteknu er 18 ára maður sem á afbrotaferil að baki. Hendur hans voru þaktar sóti og hann var með kveikjara á sér þegar hann var handtekinn, samkvæmt heimildum Le Monde.
Um 900 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna sem kviknuðu á sunnudag.