Tveggja bíla árekstur varð rétt eftir klukkan níu í kvöld þegar fólksbílar rákust á ofan við hringtorgið sem liggur að beygjunni inn á Suðurlandsbraut. Þá var umferð um gatnamótin stýrt af lögreglunni sem lokaði fyrir umferð í vestur um stund en hefur nú opnað aftur fyrir alla umferð.
Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut - Vísir