Umfangsmikil leit stendur nú yfir að tveggja ára dreng í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Síðast sást til drengsins um klukkan 10 í morgun að sænskum tíma.
Lögreglan hefur notast við leitarhunda, þyrlu og dróna við leitina og hefur leitarsvæðið smám saman verið stækkað eftir því sem liðið hefur á daginn.
„Við leituðum fyrst á nærliggjandi svæði, í hverjum einasta bíl, geymslu, húsi, ræsum og öllu mögulegu. Síðan höfum við stækkað leitarsvæðið smátt og smátt, segir Roger Westerberg, aðgerðastjóri hjá slökkviliðinu í Nordmaling, í samtali við sænska ríkissjónvarpið.
„Við höfum verið með þyrlur og dróna með hitamyndavélum. Það er allt á fullu,“ segir hann jafnframt. Þá tekur fjöldi sjálfboðaliða á vegum Missing people tekið þátt í leitinni.