Tvær stunguárásir með stuttu millibili hafa vakið óhug í Bretlandi. Árásirnar tvær eru þó af afar ólíkum toga.
Maður var stunginn margsinnis í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöld. Myndskeiði af árásinni var dreift á samfélagsmiðlum sem sýndi árásarmanninn skera þolandann ítrekað í höfuð og háls með hnífnum. Árásarmaðurinn virtist vera að reyna að hálshöggva þolandann. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og lögreglan handtók hann.
Þolandinn var fluttur á sjúkrahús alvarlega særður. Sá handtekni er frá Sómalíu og á fertugsaldri. Það varð til þess að hvatt var til mótmæla gegn straumi innflytjenda á fjölmörgum samfélagsmiðlareikningum. Einn þingmaður segir manninn vera með dvalarleyfi í Bretlandi til fimm ára.
Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands sagði árásina hörmulega og að hann liði ekki svona ofbeldisverk á götum Bretlands.
Stúlka stakk tvo samnemendur og kennara
Fjórtán ára stúlka var handtekin í morgun eftir að tveir nemendur og kennari voru stungin í skóla í Manchester. Þau voru flutt á sjúkrahús en reyndust ekki alvarlega særð.
Þetta er önnur hnífaárásin sem framin er af grunnskólabarni í Bretlandi á þessu ári. 13 ára drengur var handtekinn í febrúar og ákærður fyrir að stinga tvo aðra drengi í skóla í Lundúnum.
Yfirvöld í Bretlandi hafa reynt að stemma stigu við fjölgun hnífaárása meðal ungs fólks sem eru oft framdar með hnífum sem eru ólöglegir en til sölu á lokuðum vefsíðum.