Ekkert er vitað um ferðir fótboltaliðs frá Eþíópíu sem tók þátt í alþjóðlega fótboltamótinu Gothia Cup í Gautaborg í Svíþjóð fyrr í þessum mánuði.
Í hópnum voru um tuttugu drengir og fararstjórar. Sænska lögreglan telur hópinn hafa ákveðið að láta sig hverfa.
Drengirnir eru á aldrinum 14 til 17 ára, að því er fram kemur í tilkynningu sænsku lögreglunnar. Með þeim eru einn eða fleiri fararstjórar.
Mótinu lauk fyrir ellefu dögum síðan
Samkvæmt frétt Göteborgs-Posten gisti eþíópíska liðið í skóla meðan á mótinu stóð, líkt og venjan er. Á lokadegi mótsins, 18. júlí, komst starfsmaður skólans sem liðið gisti í að því að hópurinn hafði yfirgefið án þess að tilkynna brottför líkt og gert hafði verið ráð fyrir.
Forsvarsmenn Gothia Cup höfðu þá samband við lögreglu sem lýsti eftir hópnum. Lögregla segir hvorki drengina né fararstjórana hafa snúið aftur til Eþíópíu og að allt bendi til þess að hópurinn hafi ákveðið að láta sig hverfa.
„Það er ekkert sem bendir til þess að ólöglegt athæfi, svo sem mansal eða álíka, liggi að baki,“ segir Ellinor Halldin, starfsmaður deildar lögreglunnar í Vestur-Svíþjóð sem sér um mál týndra einstaklinga.