Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, Esmali Baghaei, segir Bandaríkin ábyrg fyrir árásarhneigð Ísraela. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í morgun, samkvæmt írönskum fjölmiðlum. Þá sagði hann að árásir Ísraels og misvísandi afstaða bandarískra embættismanna hafi varpað skugga á viðræður.
Árásir Írans og Ísraels hafa stigmagnast síðan í gær. Baghaei sagði einnig að afleiðingar þessarar stigmögnunar eigi einnig eftir að finnast í Bandaríkjunum.
Áður en Ísraelar hófu árásir á Íran í gærkvöld bárust fregnir af því að Bandaríkjaforseti hafi hvatt Benjamin Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels, til að hefna ekki árása Írana.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Íran og Ísrael til að hætta strax árásum. „Ísrael og Íran verða að hætta árásum strax,“ segir Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social.
Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar í Tehran, höfuðborg Írans, sagði að hávær sprenging hefði heyrst í borginni í dag. Hann sagði að í framhaldinu hefði heyrst fjöldi minni sprenginga sem hann taldi vera frá loftvarnakerfum borgarinnar.
Íranski fjölmiðillinn Mehr sagði að „bandarísk-síónískur“ dróni hefði verið eyðilagður yfir höfuðborginni en gaf ekki frekari upplýsingar.
Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að gagnkvæmar eldflaugaárásir Írans og Ísraels gætu haft áhrif á viðræður um að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum.
Esmaeil Baqaei sagði að það væri fullkomlega eðlilegt að árásirnar hefðu afleiðingar á viðræðurnar sem staðið hafa yfir. Hann tók þó fram að Íranar ætli að halda áfram að skiptast á sjónarmiðum við Bandaríkin með milligöngu pakistanskra yfirvalda.
Eldflaugaárásir Írana og Ísraela í gær og í dag hafa haft sín áhrif á markaði. Olíuverð hækkaði í morgun.
Brent-hráolía hækkaði um rúm fimm prósent í verði og kostar fatið 97,83 dollara. Olíuverð hækkaði líka á West Texas-markaðnum, um tæp fimm prósent, og kostar fatið þar 94,85 dollara.
Ísraelar segja að lítið tjón hafi orðið af eldflaugaárásum Írana í morgun. Einhverjar skemmdir hafi orðið á húsnæði á Vesturbakkanum þar sem brak féll úr eldflaugum en fólk hafi sloppið óskaddað.
Ísraelsher hefur gefið út að fólki sé óhætt að yfirgefa loftvarnabyrgi sín eftir síðustu árásina.
Fréttamenn AFP í Jerúsalem voru meðal þeirra sem leituðu skjóls í byrgjum meðan á árásinni stóð. Þeir sögðust hafa heyrt sprengingar.
Ísraelar skutu niður eldflaugar Írana.
Íranskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að Ísraelar hefðu ráðist á efnafyrirtæki í suðvesturhluta Írans.
Karun efnaverksmiðjan í Mahshahr hefur verið starfrækt í rúm 20 ár og var á sínum tíma lýst sem fyrsta þekkingarfyrirtækinu til að vinna afurðir úr olíu.
Að sögn íranskra fjölmiðla voru starfsmenn látnir yfirgefa fyrirtækið. Nokkur ísraelsk flugskeyti hæfðu húsnæði þess.
Um leið og við bjóðum ykkur góðan dag hefjum við fréttavakt þar sem við ætlum að flytja ykkur tíðindi af eldflaugaárásum sem Íranar og Ísraelar hafa gert hvorir á aðra síðan í gær.
Íranar skutu eldflaugum og drónum að norðanverðu Ísrael í gær til að svara loftárásum þeirra síðarnefndu á suðurhluta Beirút í Líbanon. Þetta voru fyrstu árásir Írana á Ísrael síðan vopnahlé var gert í stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran.
Ísraelar svöruðu með loftárásum á Tehran, Tabriz og Isfahan og sögðust hafa hæft hernaðarlega mikilvæg skotmörk. Í morgun gerðu Íranar svo aðra eldflauga- og drónaárás á Ísrael.