Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í gær að fækka hermönnum með viðveru í Þýskalandi vegna andstöðu kanslarans Friedrich Merz við þátttöku í stríðinu gegn Íran. Hann ýfði einnig fjaðrir forsetans fyrr í vikunni þegar hann sagði Írana hafa lítillækkað Bandaríkjamenn við samningaborðið.
Áætlað er að milli 35 og 50 þúsund hermenn séu í herstöðvum Bandaríkjanna í Þýskalandi. Trump hefur lengi verið gagnrýninn á Atlantshafsbandalagið og sagt það fljóta sofandi að feigðarósi.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti brýndi Trump til að hefja ekki loftárásir á Íran að nýju þegar þeir ræddu saman símleiðis í gær.
Trump hefði tekið rétta ákvörðun með því að framlengja vopnahléð og að endurnýjaðar árásir hefðu hræðilegar og illafturkræfar afleiðingar fyrir heimsbyggðina alla. Trump sagði samtalið gott og að aðstoð Rússa við að ljúka stríði Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran væri háð því að Pútín hætti stríðsrekstri í Úkraínu.