Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýju varnarsamkomulagi Sádi-Arabíu, Tyrklands og Pakistans.
„Þetta sýnir hvernig Miðausturlönd eru að taka höndum saman og hvernig ríki munu loksins geta varið sig á markvissari hátt,“ skrifaði Trump í færslu á Truth Social í kvöld.
Samningurinn var undirritaður fyrr í þessum mánuði og kveður á um að árás á eitt ríkjanna þriggja jafngildi árás á þau öll. Ríkin ætli að auka samstarf um heræfingar, þjálfun, upplýsingamiðlun og hernaðartækni.
AFP-fréttaveitan hefur eftir sádiarabískum heimildarmanni tengdum her og ríkisstjórn, sem krefst nafnleyndar, að stríð Bandaríkjanna gegn Íran hafi orðið til þess að flýta samkomulaginu, sem hafi verið í undirbúningi mánuðum saman.
Sádi-Arabía og Pakistan gerðu þegar með sér tvíhliða varnarsamning í fyrra, en Tyrkland bættist við fyrr í mánuðinum. Pakistan er eina múslimaríkið sem býr yfir kjarnorkuvopnum.