Nokkur töf varð við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum í morgun og hafði það áhrif á fjölda fólks sem kom til landsins með morgunflugi. Eftirfarandi mynd var birt með færslu í Facebook-hópnum Iceland Travel Tips og í einni athugasemd segist ferðalangur hafa beðið í tvær klukkustundir.
Samkvæmt upplýsingum frá Isavia varð töf á vinnslu í landamærakerfi Evrópusambandsins sem verið er að taka í notkun að fullu þessa dagana. Tafir hafa orðið á flugvöllum víðar í Evrópu af sömu ástæðu.
Isavia segist gera ráð fyrir því að fólk hafi beðið í ríflega hálftíma en kveðst ekki geta fullyrt um hvort einhverjir hafi beðið lengur.