Tón­listin bjarg­ráð eftir erfiða kulnun - Vísir

Tón­listin bjarg­ráð eftir erfiða kulnun - Vísir

Tón­listin bjarg­ráð eftir erfiða kulnun - Vísir

Joep segist enn óviss um hvað hann ætli nákvæmlega að spila á tónleikunum á Íslandi en þegar blaðamaður talaði við hann var hann enn að undirbúa tónleikaferðalagið og ætlaði að spila fyrstu tónleikana, í Berlín, nokkrum dögum síðar.

„Ég mun líklega aðallega spila lög af nýjustu plötunni minni. Þetta er líklega innhverfasta platan mín hingað til, þannig að hún mun snúast mikið um þögn, og ég mun spila nokkur lög af fyrri plötum, en þetta er innhverfasta og líklega blíðasta settið mitt til þessa, og ég vona að það gangi upp,“ segir Joep.

Spurður um tónlist sína segir hann:

„Ég er þekktur fyrir lög sem hafa sterka laglínu en ég hef færst meira og meira frá því og reynt að byggja uppbygginguna í kringum hana og ekki vera svo áberandi og ráðandi með laglínuna. Svo er hún innhverf á þann hátt að hún hefur minni söguhetju, hún hefur minni, eða einfaldari, söguþráð sem þú fylgir. Hún er meira eins og heimur sem þú stígur inn í og í þeim skilningi er hún innhverf vegna þess að hún býður þér að fara inn á við.“

Manneskjan ekki miðpunkturinn

Spurður hvort hann reyni að gera tónlist og vekja hjá fólki tilfinningar segir hann:

„Ég held að með þessari plötu sérstaklega hafi ég reynt að koma á framfæri því auðmjúka hlutverki sem við ættum að sýna í tilverunni og reynt að berjast gegn þeirri hugmynd að við ættum alltaf að vera miðpunktur alls, stjórna því. Þetta snýst um að skapa rými en ekki um stjórn. Sum lög eru, á vissan hátt, nostalgísk tilraun til að byggja upp mjög einfalda tónlistaruppbyggingu sem þú getur búið í til að finna fyrir öryggi og takast á við þessa tíma eyðileggingar. Önnur lög, vona ég, snúast meira um að sleppa þeirri hugmynd að við höfum eitthvað að segja og að við ættum, þú veist, að vera eins og vindurinn.

Joep segir að með nýju plötunni sinni hafi hann reynt að berjast gegn þeirri hugmynd að manneskjan þurfi að vera miðpunktur alls og að stjórna.

„Þetta snýst um að skapa rými en ekki um stjórn. Sum lögin eru, á vissan hátt, nostalgísk tilraun til að byggja upp mjög einfalda tónlistaruppbyggingu sem þú getur búið í, fundið fyrir öryggi í og tekist á við þessa erfiðu tíma, á meðan önnur lög snúast meira um að sleppa þeirri hugmynd að við höfum eitthvað að segja og að við verðum meira eins og vindurinn.“

Hann á von á því að á tónleikunum muni hann blanda saman nýjum lögum við þau gömlu.

„Nýjum lögum því auðvitað var þetta kynnt sem kynningarferð fyrir nýju lögin,“ segir hann en að hann muni kanna viðbrögð áheyrenda og eflaust grípa í gömul lög til að finna rétta jafnvægið milli alls.

„En ég sé til. Ég er vongóður.“

Spurður um það hvernig hann undirbýr sig fyrir tónleika segir Joep mikinn mun á því hvernig hann undirbýr sig í upphafi tónleikaferðalags og þegar líður á.

„Ég plana yfirleitt allt fyrir fram. Sérstaklega í byrjun tónleikaferðarinnar vil ég vita hvað ég þarf að gera því ég er einn á sviðinu. Við upphaf tónleikaferðalagsins er ég kannski enn dálítið meðvitaður um það, þá vil ég ekki gera of miklar tilraunir, en svo þegar líður á tónleikaferðalagið gæti ég verið sveigjanlegri.“

Erfitt að flytja píanó á milli landa

Hann segir að þó svo að það væri draumur að ferðast með sitt eigið píanó sé það ekki raunhæft.

„Það væri mjög erfitt. Ég vildi að ég gæti það. Ég meina, ég er ekki á sama skala og Ólafur Arnalds þar sem ég get hlaðið vörubíl í bát og tekið allt með, svo ég er alltaf háður því hvaða hljóðfæri ég fæ á hverjum stað, en það er erfitt, maður veit aldrei hvernig það verður. Þetta er stærsta áskorunin fyrir mig, því það getur verið mjög, mjög ólíkt því sem ég er vanur. Mér finnst gaman að spila með lokuð augun og ef píanóið er ókunnuglegt, þá er það virkilega erfitt,“ segir hann og heldur áfram:

„En að flytja píanóin sín er ekki auðvelt. Ég á eitt píanó sérstaklega sem ég elska en ég vil ekki taka það út úr stúdíóinu mínu. Ég geri það stundum, eins og í fyrsta skiptið sem ég spilaði í Fílharmóníunni í Hamborg. Ég hugsaði með mér að ég þyrfti smá heppni svo ég tók með mér mitt eigið píanó. En yfirleitt spila ég á það sem er til staðar.“

Joep verður á miðju tónleikaferðalagi þegar hann kemur til Íslands í haust og stoppar ekki mjög lengi en segist þó ætla að reyna að skoða landið, ef til vill Gullna hringinn, en svo langi hann að hitta vini sem hann eigi hér á landi.

Tónleikaferðalagið hófst í Berlín og London og heldur svo áfram í Evrópu í sumar. Hægt verður að sjá hann í Hollandi, svo Reykjavík og svo eftir það fer hann til Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands, Noregs og fjölda annarra Evrópuríkja. Túrnum lýkur svo í Kanada í október.

Joep segist reyna að undirbúa sig fyrir svona ferðalag með því að hvílast vel, vinna að lögunum sem hann ætlar að spila og njóta lífsins með vinum.

Annar ferill tók við eftir kulnun

Joep er fimmtugur en hefur aðeins starfað sem píanisti síðustu tíu árin. Hann spilaði á píanó sem barn en hætti svo þegar hann fór að velja sér starfsgrein og eignaðist fjölskyldu en hann býr með eiginkonu sinni og tveimur börnum í Amsterdam. Eftir að hann menntaði sig starfaði hann svo í auglýsingum um árabil.

„Ég spilaði þegar ég var krakki, hætti þegar ég þurfti að finna mér starfsferil og stofna fjölskyldu, og ég endaði í auglýsingabransanum í Amsterdam. Það var, á vissan hátt, fínt, en ég vildi eiginlega ekki vera þar. Ég fann mér svo leið út, í gegnum kulnun. Ég gat ekki unnið í auglýsingum eftir það og þá kom tónlistin aftur. Ég ákvað að fylgja henni og gerði plötu sem var afar vel tekið. Þá gat ég hætt að vinna og orðið tónskáld, píanóleikari, tónleikalistamaður.“

Hann segir það skrítna tilfinningu að fara í kulnun.

„Ég held að margir myndu jafnvel lýsa yfir ákveðinni ánægju yfir því að hafa farið í kulnun. Það er áfall þegar kerfið tekur yfir og sýnir þér að það að horfa aðeins á lífið frá útreiknuðu eða skynsamlegu sjónarhorni er ekki heildarmyndin. Þannig tók líkaminn minn yfir og var eins og endurræsing á kerfinu og ég sá hlutina öðruvísi. Svo hafði ég engu að tapa, sem er það besta við að fara í kulnun. Þegar þú lendir á botninum þá er það yfirleitt frábær og frjór jarðvegur til að vaxa. Það er það sem kom fyrir mig, ég tók því vel og það færði mér svo mikið af góðum hlutum.“

Tónlistin svipuð þeirri íslensku

Hvar eiga þau að byrja sem ekki þekkja tónlistina þína?

„Ég held að tónlistinni minni svipi að mörgu leyti til íslenskrar tónlistar, ég myndi líklega kalla hana norræna, norðurevrópska tónlist. Tónlist sem faðmar raunverulega depurð og veitir rými til að bera kennsl á eitthvað sem gæti verið grafið aðeins dýpra niðri.“

Þannig eigi tónlistin að geta minnt fólk á að veruleikinn sem við upplifum daglega er aðeins hluti hans og hann vilji með tónlistinni minna fólk á það. Hugga þau og færa þau nær hvert öðru

„Hún er raunverulega sprottin út af minni eigin nauðsyn til að endurtengjast heiminum og finna eitthvað sem ég gæti haldið í. Depurð tónlistarinnar byggir þannig á poppi, djassi, klassík, heims-, umhverfishljóðum, náttúru, og ég meina Ísland er mjög þekkt fyrir þessa tegund tónlistar, svo ég þarf ekki að útskýra það,“ segir hann og hlær.

Frumraunin óvænt fyrirbæri

Í tilkynningu um tónleika Beving kemur fram að tónlist hans hafi heillað hlustendur um allan heim og minni á hugleiðslu.

„Einfaldar en dýpri laglínur opna rými fyrir kyrrð og leiða okkur aftur að því sem raunverulega skiptir máli: tilfinningum, minningum og mannlegum tengslum,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að þó svo að píanóið hafi fylgt Beving alla ævi er þessi djúpa tenging við hljóðfærið greinileg í verkum hans.

„Frumraun hans, Solipsism, sem upphaflega var hugsuð fyrir fjölskyldu og vini, varð að óvæntu fyrirbæri og markaði upphaf alþjóðlegs ferils hans. Í kjölfarið samdi hann við hið virta útgáfufyrirtæki Deutsche Grammophon og tónlist hans hefur síðan náð til milljóna hlustenda um allan heim,“ segir enn fremur.

Tónleikarnir eru partur af röð tónleika 2026 víðs vegar um heiminn og verður Sóley Stefánsdóttir sérstakur gestur.

#bjargráð #eftir #erfiða #kulnun #tónlistin


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262897683d/ton-listin-bjarg-rad-eftir-erfida-kulnun

📰 Aðrar fréttir

Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
📅 24.09.2026 👁️ 0
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar Fréttin24. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skr...
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
📅 24.09.2026 👁️ 0
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri h...
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við S...
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
Móðir segist viss um að verri skiptiaðstöðu sé varla hægt að finna á Íslandi en í verslunarmiðstöðinni við Krossmóa í Reykjanesbæ. Hún vakti athygli á...
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum segja að umræða um hormónameðferðir barna séu á villigötum, hafna læknarnir því að kynin séu b...
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og tr...
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
📅 24.09.2026 👁️ 0
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét ástr...
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 0
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
Three people have been arrested after three gold bars worth around €12,000 were stolen from a home in La Laguna while renovation work was being carrie...
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
📅 24.09.2026 👁️ 0
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar...
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
📅 24.09.2026 👁️ 0
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
The Hawk T2 aircraft had been flying out of the RAF Valley station when it plummeted to the ground.
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
Birgitta Haukdal er þekkt fyrir skemmtilegan klæðaburð á tónleikum og gaf hún ekkert eftir á því sviði í þættinum. Hún mætti í raun klædd sem fimleika...
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
Greint var frá því í morgun að á Landspítala sé nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð e...
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
📅 24.09.2026 👁️ 0
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.Þetta s...
Xi fékk óvenju góðar móttökur hjá Trump
📅 24.09.2026 👁️ 0
Xi fékk óvenju góðar móttökur hjá Trump
Xi Jinping, forseti Kína, kom til Bandaríkjanna í gær. Hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu síðar í dag.Það vakti athygli að ...
Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 0
Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife
HomeTenerifeDrunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife 24-09-...
Skortir fólk til að ná tökum á stjórn­lausri ebólu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Skortir fólk til að ná tökum á stjórn­lausri ebólu - Vísir
AP fréttaveitan hefur eftir Marie Roseline Belizaire, yfirmanni neyðarviðbragða í Afríku hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO), að enn sé ekki búi...
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
Krónan ætlar að frysta verð á 647 vörum fram að áramótum til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heim...
Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg - Vísir
Alls bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð Borgarverks það eina undir áætluðum verktakakostnaði og munaði þar 376 milljónum króna. Næstlægsta boð ...
Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda - Vísir
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Málið kom á borð ákæranda þann 14. september og er hans hlutver...
Björgunarsveitir aðstoða á Hvolsvelli og Hellu
📅 24.09.2026 👁️ 0
Björgunarsveitir aðstoða á Hvolsvelli og Hellu
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa sinnt nokkrum fjölda útkalla vegna fjúkandi lausamuna á Hvolsvelli og Hellu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrú...
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
📅 24.09.2026 👁️ 0
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
Sylvester Stallone hefur tjáið sig umfang deilunnar við Arnold Schwarzenegger, sem stóð yfir í meira en tvo áratugi. Einhverjir hafa talið að deilan h...
Kengúrur á flótta á Jótlandi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Kengúrur á flótta á Jótlandi
Vegfarendur í Give á Jótlandi eru beðnir um að sýna aðgát af æði sérstökum ástæðum. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að lögreglunni á Jótlandi haf...
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
📅 24.09.2026 👁️ 0
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins Banda­rísk­ur al­rík­is­dóm­ari hef­ur fyr­ir­skip­að Trump-stjórn­inni að hleypa frétta­mönn­u...
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent
📅 24.09.2026 👁️ 1
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent Nor­egs­banki hækk­aði stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig í morg­un til að vinna gegn verð­bólgu. Bank­inn seg...
Dómari snýr við fjölmiðlabanni Trumps
📅 24.09.2026 👁️ 0
Dómari snýr við fjölmiðlabanni Trumps
Donald Trump Bandaríkjaforseti þarf að veita fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aftur aðgang að Hvíta húsinu. Þetta er niðurstaða dómstóls í Washing...
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
Parið byrjaði að slá sér upp árið 2018 eftir að systir hans kynnti þau. Þau trúlofuðu sig árið 2021 og gengu í hjónaband í nóvember 2022. Þar tók hún ...
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
Þeir sem vilja taka tónlistina með sér heim þurfa hins vegar að eiga geislaspilara, því platan verður fyrst um sinn ekki aðgengileg á netinu. Það er g...
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
Sænska lögreglan rannsakar ásakanir um að fólki hafi verið borgað fyrir að greiða lítt þekktum frambjóðanda Vinstriflokksins atkvæði í persónukjöri í ...
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
📅 24.09.2026 👁️ 1
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
Hospital chiefs in County Durham agree to a review after failings including unnecessary surgeries.
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
📅 24.09.2026 👁️ 1
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
Police had been looking into footage appearing to show the man, also known as Danny Tommo, slashing at a boat in the English Channel with a knife.
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 1
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna - Vísir
Áætlaður kostnaður við að fylla upp í þessi tíu stöðugildi yrði þrjú til fjögur hundruð milljónir króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri gr...
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“
Gular viðvaranir taka gildi ein af annarri víða á landinu í dag og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands að hyggilegt sé að tryggja lausamuni. Þá ...
Høiby skiptir um verj­endur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Høiby skiptir um verj­endur - Vísir
VG greinir frá og ræðir við Alexander Greaker, annan verjandanna. Hann og Daniel Storrvik munu reyna að fá Høiby sýknaðan í febrúar þegar málin verða ...
Veturinn verði Rússum erfiður - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Veturinn verði Rússum erfiður - Vísir
Úkraínumenn hafa áhyggjur af því að Rússar ætli sér að gera enn og aftur árásir á orkuver, dreifikerfi og hita- og vatnsveitur Úkraínu í vetur. Þessar...
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau v...
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritza...
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunna...
Djúp lægð nálgast landið og viðvörun í gildi
📅 24.09.2026 👁️ 0
Djúp lægð nálgast landið og viðvörun í gildi
Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunna...
Þú trúir ekki hvað lög­reglan gerði við sönnunar­gagnið - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Þú trúir ekki hvað lög­reglan gerði við sönnunar­gagnið - Vísir
„Sæll, ástin mín,“ sagði Mary, þegar Patrick steig inn um dyrnar. „Sæl, ástin,“ svarað hann á móti. Hún blandaði handa honum viskí. Hann þambaði það í...
Greiðir sér hálfan milljarð í arð - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Greiðir sér hálfan milljarð í arð - Vísir
Rekstrartekjur félagsins voru rúmar sex hundruð milljónir og rekstrargjöld 143 milljónir. Eftir skatta og önnur gjöld var hagnaðurinn 340 milljónir sa...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn
Grænlandssamningurinn er birtingarmynd nýs veruleika í alþjóðamálum. Fyrir Grænland skapar hann ró, að minnsta kosti um tíma. Hann er jafnframt sigur ...
„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
📅 24.09.2026 👁️ 2
„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
„Ég vil nú bara efast um að margt af þessu fólki sé í raun og veru með hag barnanna í huga,“ segir Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, þegar hann...
Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar - Vísir
Fósturerfðaskimunin, NIPT, verður í boði fyrir allar konur að lokinni 12 vikna skoðun. Í tólf vikna skoðun er meðgöngulengd metin og fjöldi fóstra ath...
Rigning og vindur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 3
Rigning og vindur - Vísir
Það dregur víða úr vindi seinnipartinn en gengur þá í norðaustan, fimmtán til 23 metrar á sekúndu á Vestfjörðum. Hiti fimm til ellefu stig.  „Suðvesta...
Bannaði Trump að banna fjöl­miðla - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bannaði Trump að banna fjöl­miðla - Vísir
Um er að ræða miðlana CNN, MS NOW og Politico. Dómstóllinn gaf út tímabundinn lögbannsúrskurð sem þýðir að miðlarnir þrír skulu fá aðgangsheimildir sí...
Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt.  Nokkrir voru stöðvaðir vegna hr...
„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“ - Vísir
Samkvæmt endurskoðuðu áhættumati eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar, að því gefnu að skilgreindar öryggisfor...
Judge temporarily overturns Trump's White House media ban
📅 24.09.2026 👁️ 3
Judge temporarily overturns Trump's White House media ban
A court has ordered the US government to reinstate access to the building for CNN, Politico and MS NOW.